Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1948, Side 78

Eimreiðin - 01.04.1948, Side 78
158 EIMREIÐIN SÝN aftur, var komið kvöld, fugl- amir þagnaðir fyrir utan glugg- ana og maðurinn minn farinn. Ég lá klukkutímunum saman á knjánum frammi fyrir altar- inu í heimiliskapellunni. Um nóttina skall á ofsaveður, með þmmum og eldingum. Regnið steyptist úr loftinu, og Inisið skalf í storminmn. Ég bað ekki guð um að bjarga manninum mínum frá því að farast í storm- inum, og þó vissi ég, að hann hlaut að vera í lífshættu þessa nótt á ferð sinni eftir fljótinu. En ég bað heitt og innilega, að hvað sem kynni að henda mig sjálfa, þá mætti guði þóknast að forða honum frá að fremja þann hræðilega glæp, sem hann hefði í huga. Og nóttin leið. Daginn eftir sat ég um kyrrt á sama stað. En um kvöldið var barið á dymar og hurðin hrist og skek- in. Þegar loks tókst að brjóta hana upp, lá ég meðvitundar- laus á gólfinu og var borin þannig inn í svefnherbergi mitt. Þegar ég kom til sjálfrar mín, heyrði ég, að einhver hvíslaði „systir“ í eyra mér. Ég varð þess þá vör, að ég lá í herbergi mínu, með höfuð- ið í kjöltu Hemangini. Þegar ég hreyfði höfuðið, heyrði ég skrjáfa í kjólnum hennar. Það var skrjáf í brúðarsilki. Ó, guð minn! Guð minn! Allar mínar bænir höfðu orðið árangurslausar! Eiginmaður minn hafði framið glæpinn! Hemangini laut niður að mér og sagði í hvíslandi, þýðum róm: „Systir, elsku systir mín, ég kom til þess að biðja um blessun þína í tilefni brúðkaups okkar“. 1 fyrstu stirðnaði ég upp eins og trjábolur, sem liefur verið lostinn eldingu. En svo herti ég mig upp og sagði með erfiðis- munum: „Hvers vegna skyldi ég ekki gefa þér blessun mína? Þú hefur ekki gert neitt rangt“. Hemangini hló sínum fjör- lega hlátri og sagði: „Rangt! Þú ætlar þó ekki að gefa í skyn, að ég hafi gert rangt með því að ganga í lijóna- band! Ekki fannst þér þú gera rangt, þegar þú giftist“. Ég reyndi að brosa, til þess að endurgjalda glaðværð henn- ar, og hugsaði með sjálfri mér: „Bænir mínar eru ekki æðri þínum vilja, ó, Drottinn. Veit mér aðeins styrk til að þola höggið og varðveita trú mína a Þig“. Hemangini var ekki enn ánægð með svar mitt og sagði: „Systir mín góð, það er ekki

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.