Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1948, Page 80

Eimreiðin - 01.04.1948, Page 80
160 • EIMREIÐIN SÝN urinn æddi, og himinninn huld- ist skýjum. 1 sálarstríði því, sem ég átti í, óskaði ég þess með sjálfum mér að fá að drukkna þarna í óveðrinu úti á fljótinu og losna þannig úr þeirri flækju, sem ég var kominn í. Ég komst samt til Mathurganj, og þar lieyrði ég fréttimar, sem björguðu mér. Bróðir þinn hafði gengið að eiga Heman- gini. Ég get ekki lýst því, live glaður og um leið sneyptur ég varð við þessar fréttir. Ég flýtti mér aftur um borð í bátinn. Á þeirri stundu opinberaðist mér vissan um það, að enginn nema þú gætir gert mig hamingju- saman. Þú ert gyðjan mín eina“. Ég bæði liló og grét og sagði: „Nei, nei, nei! Ég er engin gyðja lengur. Ég er aðeins ósköp liversdagsleg kona — eiginkon- an þín, og það eitt skiptir máli. „Ég þarf líka að trúa þér fyrir dálitlu, ástin mín“, svar- aði hann. „Þú mátt aldrei fram- ar koma mér til að fyrirverða mig fyrir sjálfum mér með því að kalla mig guðinn þinn, því ég er ekki annað en liarla ófull- kominn maður“. Daginn eftir kváðu við brúð- kaupsbjöllurnar í þorpinu litla, og fögnuðurinn fyllti loftið. En enginn minntist framar á nótt- ina liræðilegu, þegar svo nærri lá, að liamingja okkar væri að fullu glötuð. E n d i r . Skoðanakönnun Eimreiðarinnar 1948. Nokkur svör hafa þegar borizt við spurningunni í síðasta hefti Eim- reiðarinnar: Hvern telur þú beztan rithöfund, sem nú er uppi tneö íslenzku þjóöinni? Um leið og spurningin er ítrekuð í þessu hefti, skal á það minnt, að öll svör verða að vera komin í póst fyrir 15. okt. naestk., ásamt afklipptu horni Eimreiðarblaðsíðu, þar sem á eru Ietruð orðin: Skoöanakönnun Eimreiöarinnar /, 1948. Að öðru leyti vísast til síðasta heftis (bls. 73) um fyrirkomulag þessarar könnunar. Til þess að árangur hennar verði sem tryggastur, þurfa sem flestir að svara. Það er fróð- legt að sjá hver íslenzkra rithöfunda nýtur mestrar hylli meðal þjóðar- innar. Orðið er notað hér í víðustu merkingu, jafnt um skáld í bundnu máli sem óbundnu. Svarið eftir beztu sannfæringu og sendið svör yðar sem fyrst, árituð: Eimreiðin, Pósthólf 322, Rvík.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.