Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1948, Page 86

Eimreiðin - 01.04.1948, Page 86
166 RITSJÁ EIMREIÐIN hefur inni að halda, úr fornkvæðum, sögum og öðruin fornritum, yfir fjórtán aldir í sögu og menningu Norðurlanda til forna og frain til 1400. Landfræðilega er víðátta frá- sagnanna engu minni en tímalengd, því að undir leiðsögn hins margfróða safnanda fylgir lesandinn norrænuni víkingum í spor austur í Miklagarð og vestur um liaf til Vínlands, og enn víðar um höf og lönd á herferð- um þeirra eða öðruin vegferðum í margar áttir. Jafn fjölbreytt er bókin að efni, því að útgefandi liefur kostað kapps um að draga að sér föng úr sem flestum heimildarritum, eigi aðeins íslenzkum, lieldur einnig forn sænsk- um, færeyskum, forn-enskum, forn- írskum og grískum, latneskum, rúss- neskum og arahískum. Hitt þarf eng- um að koma á óvart, sem nokkuð verulega þekkir til norrænna fræða og fornaldarsögu Norðurlanda, að yfirgnæfandi meirihluti þeirra 116 þýðinga, úr fornkvæðum, sögum og öðrum rituni, sem hér er að finna, á rót sína að rekja til íslenzkra rita í bundnu niáli og óbuiidnu. Gætir hér að vonum mjög þýðinga úr Eddu- kvæðunum og hinuin kunnustu og inestu íslendingasögum, en jafnframt eru hér kaflar úr ýmsum hinuni styttri og miður kunnari sögum, að ógleymdum köflum úr fornum ritum á öðrum niáluni, eins og fyrr var gefið í skyn. 1 stuttu máli sagt: Þetta efnis- mikla safnrit veitir víðfeðma og glögga yfirsýn yfir sögu og menningu Norðurlanda framan af og fram eftir öldum; hugsjónir, hugsunarháttur og líf norrænna manna speglast þar með mörgum liætti. Þýðingar, sem eru eftir marga höf- unda og frá ýmsum tínium, eru eðli- lega misinunandi bæði um málfar og ágæti í lieild sinni, en óhætt mun mega fullyrða, að þær séu úrval úr því bezta, sem fyrir hendi er í þeim efnum á ensku máli. Ymsar þeirra eru hér einnig birtar fyrsta sinni, og eru sumar þeirra verk útgefandans sjálfs eða gerðar af lionuin í sam- vinnu við aðra þýðendur. Ætla má, að þetta fjölþætta og fróðlega rit, sem er jafn skemmti- legt og þar er vandvirknislega nieð efnið farið, verði til þess að auka áliuga enskumælandi inanna fynr fornaldarmenningu og fornbókmennt- um Norðurlanda. Og víst er um það, að allir þeir, sem þeim fræðum unna, skulda útgefanda ritsins og hinni ágætu menningarstofnun, sem þar a lilut að máli, mikla þökk fyrir það, hve tímabært og nytsamt verk er þar vel og smckklega af hendi leyst, þv* að hinn ytri búningur hókarinnar helst fagurlega í hendur við veiga- mikið inniliald hennar. Richard Beck. LONGFELLOW AND SCANDINA- VIA. A Study of the Poet’s Relo- tionsliip with the Northern Langua- ges and Literature. By Andretv Hilen. Netv Ilaven 1947 (Yale Uni- versity Press). Það er löngu vitað, að skáldið Henry Wadsworth Long- fellow (1807—1882) var í liópi þ<:irra fræðimanna og menningarfrömuða i Bandaríkjunum á fyrra helmingi 19- aldar, sem lögðu rækt við norrænar bókmenntir, og einnig það, að liann varð fyrir áhrifum úr þeirri átt. Ym- islegt athyglisvert hefur einnig verið um þetta efni ritað, en eigi hefur það fyrri en í þessari bók dr. Andrew llilen verið tekið til ítarlegrar og al- hliða rannsóknar; en bókin er dokt-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.