Eimreiðin - 01.04.1948, Side 88
168
RITSJÁ
EIMREIÐIN
Frágangur bókarinnar er prýðileg-
ur, eins og sæmir forlagi liins mikla
báskóla, sem stendur að lienni, en
hún er 107. bindið í ritsafni Yale-
háskólans um ensk fræði (Yale
studies in English).
Richard Beck.
AÐRAR ENSKAR BÆKUR,
SENDAR EIMREIÐINNI.
A Trueborn Englishman eftir M.
P. Willcocks (Allen & Unwin Ltd.,
London 1947) og Henry Fielding eft-
ir Elizabeth Jenkins (Home & Van
Thal Ltd., London 1947) eru hvort-
tveggja bækur um rithöfundinn
Henry Fielding (1707—1754). Bók
Willcocks er ítarleg ævisaga Field-
ings, skemmtilega rituð og skreytt
myndum, þar á meðal forsíðumynd
af hinum fræga uppdrætti Hogartlis
af Fielding, en Hogarth var samtíðar-
maður lians og vinur. Fielding, sem
var allt í senn, skáldsagnaliöfundur,
lcikritaskáld og blaðainaður, var eitt
af öndvegisskáldum Breta á 18. öld,
og hefur verið sagt um hann, að
hann sé í ritum sínum ensklundað-
astur allra enskra rithöfunda fyrr og
siðar. Ádeila lians og kýmni er með
ágætum. Fátt eða ekkert eftir liann
liefur verið þýtt á íslenzku.
Paradise Lost and The Seventeentli
Century Reader, eftir B. Rajan, er
ítarleg greinargcrð uin hið fræga
kvæði Miltons, Paradísarmissi, og
jafnframt tilraun til að gagnrýna það
út frá sjónarmiði samtíðarmanna
hans. Bók þcssi er ný viðbót við
þann fjölda fagurfræðilegra rita, sem
út liafa komið um enska skáldið
Milton, ævi lians og ritstörf. En fræg-
ast verka hans mun löngum talið
Paradísarmissir, óðurinn mikli, sem
séra Jón skáld Þórláksson á Bægisá
réðst í að þýða, af slíkri snilld, að
atliygli vakti heima og erlendis, en
sú þýðing var prentuð í Kaupmanna-
höfn árið 1828.
The Heart of the Matter heitir ný-
útkomin skáldsaga eftir Graham
Greene (sjá um liann greinina „Tveir
enskir rithöfundar“ í Eimr. 4. h.
1946). Saga þessi er talin með þeim
beztu, sem út liafa komið í Englandi
á fyrra helming ársins 1948. Heine-
mann Ltd. í London gefur bókina
út, eins og aðrar bækur Greenes, þó
að liann sé sjálfur forstjóri annars
þekkts útgáfufyrirtækis í I.ondon,
Eire & Spottiswoode. Greene var
kornungur og nýlega orðinn 1®S>
þegar liann tók ástfóstri við Náma
Salómons, Allan Quatennain og aðr-
ar þær sögur Rider Haggards, sem
liann lét gerast í Afríku. Það er ef
til vill meðal annars þess vegna, að
suinar sögur Greenes eru látnar ger-
ast þar — og þar á meðal þessi síð-
asta. Annars er gaman að geta þess,
að sumar sögur Haggards voru ákaf-
lega vinsælar unglingabækur bcr
lieima á íslandi um og eftir síðustu
aldamót, ekki sízt Allan Quatermai*1
í þýðingu Einars Hjörleifssonar
Kvaran, en sú þýðing birtist fyrst 1
vikublaðinu Lögbergi í Winnipeg-
Greene lét sér þó ekki nægja Afríku-
sögur Haggards einar, lieldur ferðað-
ist mikið um Afríku og dvaldi lang-
dvölum í sumum nýlendum Breta
þar. Bækur Greenes hafa náð miklum
vinsældum. Hann tók snemma :'ð
fást við skáldsagnagerð og var ekki
nema 15 ára, þegar fyrsta smásagan
hans birtist á prenti, í enska blaðinu
Star.
Sv. S.