Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1953, Page 31

Eimreiðin - 01.07.1953, Page 31
eiMREIÐIN STARFSEMI HEIÐAFÉLAGSINS 183 Öanmörk mun vera eina land heimsins, þar sem bændur hafa bundizt samtökum til þess að gróðursetja skjólbelti í svo stórum stil Og án styrks frá ríkisvaldinu. Þetta starf hefði verið óhugs- andi án traustrar og raunsærrar forystu. Og starf Dalgass á þessu sviðj verður enn merkara, þegar athugað er, að alla reynslu skorti um gerð skjólbelta í þessum landshluta. Menn trúðu því lengi vel, ad ókleift yrði að rækta þama skjólbelti, sem tækju ekki allt of tuikið rúm frá ökrunum, þótt unnt reyndist að rækta stór skógar- Sv®ði. En Dalgas fékk að sjá mikinn árangur starfs síns á þessu sviði, 0g nú eru skjólbeltin talin frumskilyrði þess, að unnt sé að reka landbúnað á Norður-Jótlandi. Halgas beitti sér einnig fyrir því, að trjágarður risi upp við hvert heiðabýli. Árið 1872 hélt hann fyrirlestur um þetta efni, sem vakti mikla athygli, og frá þeim tíma fer trjágörðum við keiðabýlin ört fjölgandi. Ekki vinnst hér rúm til þess að geta annarra manna, sem unnu ad stofnun heiðafélagsins, þótt margir mjög merkir menn komi þar við sögu. I stað þess verður drepið á starf félagsins eins og það er nú, þótt sú mynd verði harla ófullkomin. Eélagið hefur aðalbækistöð sína í Viborg. Því er skipt í eftir- ^urandi deildir og vinna sérfræðingar, er hlotið hafa háskóla- menntun, innan hverrar deildar. Þær eru þessar: 1- Skógræktardeild. 2- Deild, er sér um að afla kalks til nýræktar. 3- Akuryrkjudeild. 4- Deild, er sér um framræslu lands, áveitur og fyrirhleðslur. 5- Deild, er annast jarðvegsrannsóknir. Heiðafélagið hefur um 390 manna starfslið í föstum stöðum. Og sem dæmi um starfsemina má geta þess, að félagið hefur milli 10 0g 20 manns í þjónustu sinni, er rannsaka jarðveg, en forstjóri deildarinnar er þekktur vísindamaður. Sama máli gegnir um skógræktina. Eins og fyrr getur, álitu Humherjar félagsins, að öll ræktun heiðanna væri svo nátengd r*ktun skóga til skjóls, að ókleift væri að kljúfa hana frá öðrum r*ktunarframkvæmdum. Og enn líta forystumenn félagsins á skógrækt sem mikilvæga grein landbúnaðar. Þar mætast ekki and- st®ðir hagsmunir, þar sem bændur landsins hafa nú sannfærzt nm, hve mikilsverð skógræktin er í þágu annarrar ræktunar. Það and, sem nothæft er til akuryrkju eða beitar, er notað á þann aH, en þar sem jarðvegur er óhentugur til slíkra nota, eru trjá- Þlöntur gróðursettar.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.