Eimreiðin - 01.10.1953, Blaðsíða 74
310
LEIKLISTIN
eimbeiðiN
Valur Gíslason og Regína ÞórSardáttir í hlutverkum Jóns Arngeirssonar
og önnu, konu hans.
áhrif frá umbrotum hins um-
svifamikla þýzka læknis, Stru-
ensee, við dönsku hirðina, hafi
hingað til íslands borizt og haft
sín áhrif á hugi frelsisunnandi
bænda, áhrif, sem hafa þá
einnig verið litin illu auga af
sumum yfirvöldum landsins.
Um frammistöðu leikendanna
er það að segja, að yfirleitt
leystu þeir hlutverk sín vel af
hendi. Hjónin á Eyjólfsstöðum,
Valtý og Ingibjörgu, leika þau
Gestur Pálsson og Þóra Borg-
Einarsson af næmum skilningi,
og Valtýr yngri, sonur þeirra,
er gerfilegur og vaskur piltur í
meðförum Rúriks Haraldssonar,
en hlutverk hans er lítið frá
höfundarins hendi, minna en
efni gátu staðið til, þar sern
voru ástir hans og Sólveigar 1
Beinárgerði, en hana leikur Sig-
ríður Hagalín. Bæði þessi hlut-
verk hefði höfundurinn getað
gert tilþrifameiri en raun er á,
ef hann hefði vandað sig. Har-
aldur Björnsson leikur umrenn-
inginn, Guðmund gamla, af mik-
illi vandvirkni.
Erfiðasta hlutverkið í leikn-
um, Jón Arngeirsson, sýslu-
mann á Egilsstöðum, leikur Val-
ur Gíslason. Frá höfundarins
hendi er Jón sýslumaður hinn
mikilláti valdsmaður, sem þyk'
ist ganga erinda réttvísinnar,
en er þó fyrst og fremst að
hugsa um eigin hag og mann-
orð, en illmenni er hann ekki.