Eimreiðin - 01.10.1953, Blaðsíða 41
'■'Mheiðin
Á AUSTURLEIÐUM ENN
277
Steinrunni trjábolurinn, talinn einnar milljónar ára gamall eSa meir.
svölunum, en rabarbari, þrenningarfjóla og gleym-mér-ei hald-
ast enn í hlaðvarpanum.
Utar með firðinum standa bæirnir Nes og Neshjáleiga, báðir
^Oömir í eyði, en hús sæmileg og kafgras á túnum. Mun Nes
afa farið í eyði síðastliðið vor. Þótti Nes góð jörð. Þar bjó
■Páll Ólafsson, skáld, sem kunnugt er. ÍJtræði mun hafa verið
talsvert, þótt góða lending vanti og Páll kveði: „Það er ekki
borsk að fá í þessum firði“ o. s. frv. Fallegt er í Nesi, sést þaðan
bæði yfir fjörð og út á haf. Þar eru lika gróskumiklar blóma-
kfekkur með blákollu, gullkolli og fleiri litfögrum blómum.
^tikið af hinu sjaldgæfa bláklukkulyngi vex rétt við túnið. Geit-
hvönn er hér og hvar í sjávarbökkunum og mýraber í engjunum
roilli Ness og Seljamýrar. Skammt utan við Nesbæina mjókkar
kiglendið mjög. Þar úti á „landsenda“ er mjög víðsýnt uppi á
s)avarbökkunum. Skarfakál vex þar í gjánum, og litunarmosi
Úar klappirnar dökkar.
Stakkahlíð er stórbýli og miðstöð Loðmfirðinga. Stefán í