Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1954, Page 11

Eimreiðin - 01.10.1954, Page 11
eimreiðin LJÓS HEIMSINS 243 vsegi komu hans rætzt fullkomlega. Ljósið úr austri hefur orðið hið milda ljós, sem lýst hefur heiminum um aldir. Þau atvik koma fyrir í lífi flestra, að þau opna augu þeirra fyrir eigin mistökum. Vér sjáum hve seint oss miðar, hve skammt er komið óleiðis. Ars longa, vita brevis, listin er löng, en lífið stutt, er mikilvægt umhugsunarefni hverjum manni. Aldrei verður sannleiki þessara orða oss skýrari en í ljósi fagnaðar- boðskapar jólanna. 1 því ljósi sjáum vér eigin ófullkomleik betur en ella. Öll hin langa, torsótta og skrykkjótta ganga vor mannanna um völundarhús tilverunnar er leit að ljósi. Vissulega gengur sú leit oft grátlega seint. En ljósleitin er dásamlegt hlutverk, því að ljósið er ímynd og tákn hinnar æðstu hugsjónar um fegurð, vizku og mátt, eins og þetta þrennt opinberast i fagnaðarboðskap jólanna. Um ljós efnisheimsins hafa verið ritaðar margar bækur, og heil vísindagrein, ljósfræðin, fjallar um þau flóknu og vanda- sömu efni, hvað Ijósið sé, um verkanir þess, einkenni og eigin- leika. Oss er sagt, að ljósið sé rafsegulöldur eða lýsandi geisla- °rka, sem verki á regnbogahimnu augans og valdi sjónskynj- unum. En vér vitum einnig, að það er ekki nema tiltölulega uijög takmarkaður hluti ölduhreyfinga ljóssins, sem augu vor fá skynjað. f litrófi ljóssins eru ósýnilegir geislar báðu megin við hið sýnilega litróf, sem heita ýmsum nöfnum, útfjólubláir geislar, x-geislar, gammageislar og geimgeislar annars vegar og utrauðir geislar, Hertzöldur og radíó-öldur hins vegar. Sumir eru þeim hæfileikum gæddir, að þeir geta séð suma þá geisla, sem annars eru ósýnilegir í litrófinu. Þessir menn eru það, sem kallað er skyggnir menn eða ófreskir. Og enn eru aðrir, sem fá skynjað hljóðöldur langt fram yfir það, sem venjuleg eyru fá áorkað. Þeir eru gæddir dulheyrn. Vér tölum um hljóðöldur, rafmagnsöldur, ljósöldur o. s. frv., og vitum, að útfjólubláu ljós- öldunum hefur verið skipt í margs konar deildir, x-geislunum, gamma- og geimgeislunum einnig, en vér vitum í rauninni harla Htið um eigindir þeirra og áhrif. Vér látum sérfræðingana um að kryfja þau mál til mergjar. Vér vitum það eitt, að efnisheim- Orinn er magnþrunginn óteljandi tegundum geisla, og oss feynist erfitt að finna takmörkin fyrir því, hvar geislaorku

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.