Eimreiðin - 01.10.1954, Blaðsíða 27
JÁTNINGAR
eimreiðin
259
sýndarmennskan leysir engin vandamál, baráttan fyrir nýrri,
andlegri endurfæðingu í list nútímans.
Undantekningar frá þeirri öfugþróun, sem ég hef lýst, er
að sjálfsögðu að finna þar sem eru hinir miklu meistarar, svo sem
Rembrandt og Bach, svo að nefnd séu dæmi, sem þrátt fyrir
tíðarandann hafa skapað eilíf verðmæti í listum. En þessar
undantekningar kollvarpa í engu þvi, sem ég hef sagt, heldur
þvert á móti staðfesta, að á einu ríður mest í allri listsköpun:
lifandi sambandi við guðdóminn og innblástur heilags anda hans.
Sv. S. þýddi.
*
HISPURSLAUSAR JÁTNINGAR.
Kvenfrelsi fyrir konu sjónum.
Hið svokallaða kvenfrelsi er, að mínum dómi, einhver mesta skyssa, sem
wenningarsagan kann frá að greina. Þegar ég sé myndir af stúlkum, þenjandi
sig i kapphlaupi á íþróttavöllum, með alla vöðva afmyndaða af áreynslu og
andlitin grett og gagursleg, eins og á karlmönnum við stritvinnu, þegar ég
heyri vinkonur mínar halda fram þeirri fádæma firru, að konur eigi að leita
hamingjunnar í þvi að stjórna flugvélum, káka við keyrslu bila eða gerast
framkvæmdastjórar i verzlun og viðskiptum, þá verður mér blótt áfram
flökurt af blygðun og smán fyrir hönd kynsystra minna.
Ég hef viðbjóð á þvi, að vera minnt á, að ég hafi kosningarrétt —, og
nota hann sjaldan og hef ógeð á konum i þingmannsstöðu. Þær segja þar
svo marga fjarstæðuna og tala of mikið, — alveg eins og við hinar.
Hilda Strickland.
Svona erum viS nú inn við beiniS.
Gagnrýnendur sjónleikja eru, hvað sem þið kunnið að hugsa um þá, ein-
staklega góðviljaðir sveimhugar, sem sífellt eru að reyna að hera í bætifláka
og sjá ekki sólina fyrir leikhúsinu.
Þeir vilja miklu heldur lofa sjónleik en lasta, og neyðist þeir til að verða
harðorðir til þess að vera sannir, þá tekur það þá svo sárt, að þeim liggur
við gráti.
Beverley Baxter, rithöfundur.