Eimreiðin - 01.10.1954, Blaðsíða 12
244
LJÓS HEIMSINS
eimreiðin
efnisheimsins lýkur og hvar geislavald andans tekur við. Og ég
hygg, að vísindunum reynist þetta einnig erfitt verk. Vísindin
hafa ekki haggað neinu í hinni ævafornu kenningu, sem vitring-
arnir úr Austurlöndum grundvölluðu sína astrológisku útreikn-
inga á, kenningunni um skipulagsbundna heild alls hins skapaða,
kenninguna um macrokosmos og microkosmos, alverund og ein-
verund, manninn gagnvart sinni stjörnu, alheiminum og skap-
ara alls, sem er.
Jólin eru stundum nefnd hátíð ljóssins. Við komu þeirra hér á
norðurhveli jarðar hefur myrkur skammdegisins náð hámarki.
Vetrarsólhvörf eru að baki, og brátt tekur daginn að lengja á
ný. En það ljós heimsins, sem jólin flytja oss, er ekki háð árs-
tíðum eða neinum skilyrðum hinnar ytri náttúru. Það ljós lýsir
upp hugi þeirra, sem því veita móttöku, hvernig sem umhorfs
kann að vera í hinum ytra heimi. Ýmsir erfiðleikar verða á
vegi vor flestra, og oft er dimmt hið innra með mönnum, jafn-
vel einnig þegar birtan i nátti'irunni er mest og sól hæst á lofti.
Ljós hennar fær ekki alltaf rekið þaS myrkur á flótta. En hið
milda ljós hans, sem jólin boða, logar yfir oss jafnt í myrkri
vetrar sem í vorsins birtu. Það getur læknað öll mannanna
mein, ef þeir leita þess og veita því viðtöku. Þetta er ekkert
orðagjálfur, heldur hinn æðsti veruleiki, hin eina örugga lausn
á vandamálum einstaklinga og þjóða í dag, eins og ætíð áður,
einfaldur og óbrotinn sannleikur — í mikilleik sínum og mætti-
Ljósið frá Betlehem, sem skín í myrkrinu, jafnt í válegum vetrar-
hríðum sem á vorbjörtum langdegiskvöldum, getur útrýmt öll-
um deilum í alþjóðamálum, öllum flækjum stjórnmálanna, öllu
sundurlyndi út af trúarbrögðum, kynþáttahatri og ríg milli
þjóða, á skammri stund, — skapað frið á jörðu, ef það aðeins
fengi að verka í vorri vansælu veröld.
Þegar skáldið og mannvinurinn dr. John Henry Newman,
kardínáli, orti sitt ógleymanlega ljóð, „Lead, kindly Light“, var
hann staddur á báti frá Sikiley, en þaðan hafði Newman lagt
í ferðina veikur af mýrarköldu, sem hann hafði tekið á eynni-
Sjóferðin um Miðjarðarhafið tók langan tíma, en henni var
heitið alla leið til Marseille á Frakklandi. Óhagstæð veðrátta
seinkaði ferðinni, og þarna viti á öldum hafsins velktist höfund-
urinn sárþjáður af sýki þeirri, sem hann hafði tekið. Undir