Eimreiðin - 01.10.1954, Blaðsíða 79
eimreibin
RITSJÁ
311
l>að sýnir líf og þróun og fullt fjör
hins djarfa og hressilega skálds. Það
er gott og ánægjulegt, hversu vel
hann endist. Bók þessi — og þá ekki
siður kvæðabókin Hrímnœíur — eru
óræk vitni þess.
Þorsteinn Jónsson.
SAGA MANNSANDANS V.
VEESTURLÖND eftir Agúst H.
Bjarnason. Rvík 1954 (Hlaðbúð).
Fimmta hindið af Sögu manns-
andans er nú komið út, vel úr garði
gert. 1 þvi eru 49 myndir, flestar
mannamyndir.
Um efni ritsins er það að segja,
að hér fjallar hinn fróði maður,
Ágúst H. Bjarnason, prófessor, um
mikilmenni andans og heimspekileg-
ar og menningarlegar stefnur allt fró
því næstu bók á undan (Róm, 4.
bindi þessa verks) sleppir til loka 18.
aldar. Þó entist honum ekki aldur
til að gera þetta bindi úr garði eins
og hann hugsaði sér, segir sonur hans,
Hókon Bjarnason, í eftirmála bókar-
innar. Einkum hafði próf. Ágúst
hugsað sér að rita nákvæmar um
áhrif Araba og Islam á evrópska
menningarstrauma á endurfæðingar-
timabilinu. Ágúst H. Bjarnason (f.
1875) dó 22. september 1952. Próf.
Símon Jóh. Ágústsson fór yfir þetta
bindi, svo og próf. Björn Magnússon
yfir nokkurn hluta, þar eð höfund-
inum entist ekki aldur til þess að
ganga endanlega fró bindinu. Er hér
afarmikill fróðleikur saman kominn
og í aðalatriðum skipt i fimm kafla,
er nefnast: Dante, Endurreisnartíma-
bilið, Siðbótartímarnir, Heimsmynd-
in nýja, Hin nýrri heimspeki. Er svo
hverjum kafla skipt í marga undir-
kafla, aðallega getið helztu andans
manna tímabilsins, lýst kenningum
þeirra og lifsskoðun, svo og heim-
spekistefnum hinna ýmsu manna og
tíma, einnig sögulegra viðburða, er
áhrif höfðu ó menninguna.
Þessi bók er fyrst og fremst fræði-
bók, sagnfræðileg og furðu margt
tekið fram í stuttu máli, þvi að efnið
er afar mikið. Auk þess eru svo sjólf-
stæðar ályktanir höfundarins. Get ég
ekki fundið annað en þar sé vitur-
lega um fjallað, hlutdrægnislaust og
með glöggri yfirsýn. Það er mikils
virði fyrir fróðleiksfúsan almenning
að hafa þessar ágætu bækur Ágústs
H. Bjarnason til lærdóms og mennt-
unar og stórt menningaratriði, að
hinum ágæta vísindamanni auðnað-
ist að koma svo miklu í verk, óður en
hann hvarf héðan af jörðu. Manns-
ævin er stutt og erfið leiðin, þar sem
alltaf verður að fitja upp á ný með
hverri kynslóð. En þó verður það
ávallt auðveldara hverri nýrri kyn-
slóð, því að hún getur að nokkru
leyti byggt á þeim grunni, sem hinir
föllnu kappar hafa reist. Ágúst H.
Bjarnason hefur gefið þjóð sinni
merkileg rit til að byggja á með Sögu
mannsandans, og hinn ágæti frógang-
ur bókanna, góðar myndir og vand-
legur prófarkalestur er útgefendun-
um til sóma.
Þorsteinn Jónsson.
ISLENZKT GULLSMlÐI.
Afmælisrit þetta er gefið út af
Skrautgripaverzlun Jóns Sigmunds-
sonar við lok hálfrar aldar starfsemi,
29. október 1954. Bókin hefst á ævi-
sögu Jóns Sigmundssonar, sem nær til
bls. xx. Hinn mæti maður, Jón Sig-
mundsson, andaðist árið 1942, var
hann samtíðarmönnum að góðu kunn-
ur, ágætur gullsmiður og heiðurs-