Eimreiðin - 01.10.1954, Blaðsíða 84
316
RITSJÁ
EIMREIÐIN
niðurlagsorðunum þremur úr visu
Jóns biskups Arasonar hinni alkunnu:
„Vondslega hefur oss veröldin blekkt"
o. s. frv. Höf. kemur manni þægilega
á óvart með þessu skáldverki sinu. í
því leikritahungri, sem kvartað er um
að nú þjái vort vinsæla Þjóðleikhús.
Höf. hefur fléttað, sem undanfara að
hinu sögulega viðfangsefni, örlaga-
þáttu úr lifi ungs fólks, bæði heima
og erlendis, til þess að gefa leiknum
litauðgi og dramatíska stígandi. Ég
vil ekki nefna leik þennan sögulegan
sjónleik, enda gefur höfundurinn
sjálfur hvergi í skyn, að svo sé til
ætlast, þótt erfðahyllingin 1662 sé
söguleg staðreynd. Hann breytir
meira að segja föðurnafni Árna lög-
manns Oddssonar og gerir hann Ólafs-
son.
Mesti þungi ábyrgðarinnar af því
verki, sem gerðist suður í Kópavogi
fyrir 292 árum, lendir hér á herðum
ungs metorðagjarns Islendings, sem
áreiðanlega hlyti smánarheitið
fimmtu herdeildar maður, væri hann
uppi nú é dögum, enda jafnframt
leiksoppur fláréðrar stjórnkænsku i
hinu háa kansellii konungs. Með
nokkrum ólíkindum er taumlaus
metnaður þessa unga manns, en þó
allvel rökstuddur. Mynd sú af Hinrik
Bjálka lénsgreifa, sem höf. dregur
upp, er allmjög frábrugðin skilningi
þeim, sem sagan hefur geymt af for-
ingja hermannanna, yfir höfuðsvörð-
um landsmanna á Kópavogshæðuin
1662. Hér er honum lýst sem val-
menni og góðum dreng i flestu.
Samtöl eru víða snjöll, og tekst höf.
að beita vel stíl og talsmáta með 17.
aldar einkennum. Stundum lætur höf.
þau fara fram í rímuðum setningum,
að hætti klassiskra leikritaskálda,
Shakespeares, Ibsens o. fl. Oftar eru
þó samtölin i óbundnu máli.
Ég hygg, að leikrit þetta nj-ti sin
vel á leiksviði, við vandaða sviðsetn-
ingu, leikið af góðum leikurum og
undir stjórn góðs leikstjóra.
Sv. S.
ÖNNUR *RIT,
SEND EIMREIÐINNI:
Sefajjöll (ljóð) eftir Þórodd Guð-
mundsson frá Sandi. Hafnarfirði
1954.
Turnar viÖ torg (Ijóð) eftir Kristin
Pétursson. Keflavik 1954.
Sólarsýn eftir Ara Arnalds, Rvík
1954 (Hlaðbúð).
Á veraldar vegum eftir Þóri Bergs-
son, Rvik 1953 (ísaf.).
Frá morgni til kvölds eftir Þóri
Bergsscn, Rvik 1953 (Isaf.).
Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
fyrir áriÖ 1954. Winnipeg 1954.
Verzlunaiskýrslur 1952, Rvík 1954
(Hagstofan).
Árbók Hinis islenzka fc: r.leifafclags
1955, Rvík 1954.
Minningarrit um Asmund P. ló-
hannsson, Winnipeg 1954.
lslenzk lœknisfrœÖiheiti eftir Guö-
mund Hannesson, Rvík 1954 (H.f.
Leiftur).
SamtíÖ og saga, VI. bindi, Rvík
1954 (H.f. Leiftur).
Bjarni M. Gislason: De islandske
hándskrifter stadig aktuelle. Ry
1954 (Skyttes Forlag).
Music in Germany by K. H. Rup-
pel, Munchen 1952 (1’. Bruck-
mann).
Sumra þessara rita verður getið
nánar siðar.