Eimreiðin - 01.10.1954, Blaðsíða 32
264
LEIKRITASKÁLDIÐ E. O’NEILL
EIMREIÐIN
frumskóginum, reis villimannseðlið upp í honum og ærði
hann. I Anna Christie (1921) er hafið hinn mikli dragvaldur
í ævi sænska skipstjórans gamla. Hann sendir önnu dóttur
sína til Minnesota, eins langt frá sjó og komist verður, til
að forða henni frá áhrifum hafsins, en allt kemur fyrir ekki.
Hún er þar eins og fiskur á þurru landi, hrasar í öngum
sínum og flýr aftur til New York, þar sem hún giftist írskum
sjómanni.
1 The Hairy Ape (1922) er villimaður að lifna til umhugs-
wnar um sjálfan sig og mannheim, en kemst ekki lengra en
að skynja það, að hann er á rangri hiilu í lífinu. Verður hon-
um það síðast fyrir að óska þess, að hann væri aftur orðinn
skynlaus api. Þess vegna gengur hann í búr górillans, sem
kyrkir hann í greip sinni.
4. Á árunum 1922—27 reyndi O’Neill að brjóta bönd
vanans bæði í efni og formi, skapa leikrit í nýjum anda og
af nýrri gerð fyrir nýtízkusvið. Leiksviðið, sem hafði verið
realistiskt, varð nú sýmbólskt eða expressíónistiskt. Ljós og
skuggar fengu nýtt hlutverk, ýkjur og afskræmi héldu inn-
reið sína á sviðinu. Grímur, sem Grikkir höfðu notað, voru
teknar upp á ný til að sýna eðli sálarinnar, sömuleiðis eintöl
Shapespeares og ávörp til áheyrenda. Þetta var allt ónáttúra,
sem gamla realistiska sviðið hafði löngu bannfært. Bæði
leikhússmenn og höfundar leituðu nú veruleikans á bak við
veruleikann og hefðu helzt viljað gera leikhúsið að kirkju
nútímans, eins og þeir töldu að leikhúsið hefði verið á dög-
um Grikkja og eins og það var í öndverðu á Vesturlöndum
sprottið úr skauti kirkjunnar.
Yfir þessum vötnum svifu andar Strindbergs, Nietzsches
og Freuds. Nietzsche var heimspekingur O’Neills fyrir 1927,
Freud eftir það, í stórum dráttum. Raunar var það ekki
fyrst og fremst hin kunna ofurmennis-heimspeki Nietzsches,
sem hafði áhrif á O’Neill, þótt hann læsi Also sprach Zara-
thustra, þegar hann var í Harvard. Það var fremur bókin
Die Geburt der Tragödie aus dem Geiste der Musik (1871))
sem varð biblía O’Neills um tíma. 1 þessari bók sýnir Nietzsche
fram á tvieðli hinnar grísku leiklistar og táknar það með
tveim goðum Grikkja, Appollo og Dionysos. Appollo er goð