Eimreiðin - 01.10.1954, Blaðsíða 29
eimreiðin
LEIKRITASKÁLDIÐ E. O’NEII.L
261
Ekki virðast mörg leikrit hans hafa náð vinsældum á Is-
landi, ef trúa má leikritaskrá Lárusar Sigurbjörnssonar
(1946). Hann telur aðeins Ég man þá tíð (— Ah Wilderness)
í Þýðingu eftir Boga Ólafsson, sýnt 1946, 1 þokunni (= Fog),
útvarpsleik, þýddan af Klemenz Jónssyni yngra 1945, og
Morgunstund (= Before Breakfast), útvarpsleik, þýddan
1935 af Lárusi Sigurbjörnssyni sjálfum.
2. Ævi O’Neills hefur oft verið litlu ódramatískari en
leikrit hans. Hann var þrígiftur. Var fyrsta kona hans Kath-
leen Jenkins, þau giftust 1909 og skildu 1912, en höfðu átt
einn son, er framdi sjálfsmorð 1950. Annarri konu sinni,
Agnes Boulton, kvæntist O’Neill 1918, þau áttu tvö börn:
son Shane og Ona dóttur; hún giftist innan við tvítugt
Charlie Chaplin í ónáð föður síns, enda var Chaplin 35 ár-
um eldri en hún, samt hafa þau átt fimm börn. O’Neill og
Agnes skildu 1929, og kvæntist hann sama ár síðustu konu
sinni, Charlottu Monterey. Þótt eigi væri annað kunnugt
um hjónabönd hans en þetta, mætti gizka á, að oft hefði
gengið brösótt til á heimili hans, enda eru hamingjusöm
hjónabönd sjaldgæf, ef ekki óþekkt, í leikjum hans.
O’Neill og kona hans hin síðasta voru með annan fótinn
í New York, til að geta verið nálægt Broadway, fram að
1948. Þá mun höfundurinn hafa verið orðinn veikur af Park-
inson-sýki, sem að vísu dró hann ekki beint til dauða —
hann dó úr lungnablógu —, en lamaði hann svo síðustu árin,
að hann var lítt fær til vinnu og skrifta. Þau hjón keyptu
Htið hús á Marble Head, Massachusetts, og þar bjuggu þau,
þar til skömmu áður en hann dó, að þau fluttu til Boston,
en þar dó hann 27. nóvember 1953. O’Neill var frábitinn
fjölmenni og grafinn í kyrrþey.
O’Neill var fæddur á Broadway í New York 16. október
1888, sonur írskra hjóna, kaþólskra. Var faðir hans vel þekkt-
ur leikari, en ekki mun þeim hafa komið of vel saman, því
að bæði strauk O’Neill að heiman, unglingurinn, og gerðist
sjóari, en þegar hann fór að skrifa, var honum tamt að lýsa
feðrum sem fjölskylduharðstjórum. Aftur á móti virðist hafa
verið kærra með honum og móður hans, og má líka sjá þess
merki í leikritum hans. Flækingur hans, einkum sjómennsk-