Eimreiðin - 01.10.1954, Blaðsíða 62
294
ÖLYGINN SAGÐI MÉR
eimreiðin
þrengist hringurinn um Kristján nokkurn Hallsson, kaup-
mann. Hann hefur upp á síðkastið verið mjög í munni kerl-
inganna í þorpinu. Kristján er ungur, ógiftur og myndar-
legur, nýkominn frá verzlunarnámi erlendis. Hann er sonur
Halls Hailssonar, helzta kaupmanns á staðnum, og er nýbú-
inn að taka við verzlunarstjórastöðunni af föður sínum.
Kerlingunum þykir hann ekki vera við eina fjölina felldur.
Hanna í Gerði hefur sérstöðu, þegar rætt er um skemmt-
analífið í bænum. Hún á nefnilega heima skammt frá „gúttó-
inu“. Ekki skaðar það heldur, þegar rætt er um kaupmann-
inn, að hún býr beint á móti kaupmannshúsinu. Þessarar
sérstöðu sinnar neytir hún nú út í yztu æsar. Hún segir frá,
og augun glampa af ákafanum og eldrautt andlitið glóir
eins og sól í heiði:
„Svo var ballið búið um þrjúleytið. Strákarnir í Seli fóru
heim með þeim Diddu og Siggu. Ég sá á eftir þeim upp
alla götu. Bína í Króki hékk utan í Færeyingunum — auð-
vitað! Það er nú auma dræsan, sú manneskja. Þeir fóru
með hana niður í skip, eins og nærri má geta. Ja, því segi
ég það, ef hún móðir hennar gæti litið upp úr gröfinni, þá
mundi henni aldeilis bregða í brún, gömlu konunni. En það
er svo sem ekki að furða, þó að unglingarnir lendi út á
galeiðuna. Þetta er ekkert uppeldi á krökkum hérna. Og
þeir, sem helzt ættu að gefa gott fordæmi, eru barasta ekkert
betri. Hvað höfðingjarnir hafast að, hinir ætla sér leyfist
það. Jú, jú. Eftir höfðinu danza limirnir. Það ætti þá að
vera betra, sumt fína fólkið hérna!“
Hanna dæsir og tekur sér málhvíld. Hún nýtur þess að
draga frásögnina á langinn, til þess að æsa forvitnina sem
mest upp í vinkonum sínum.
„Jæja, loksins klukkan hálffjögur kom blessaður kaup-
maðurinn okkar ofan götuna, frakkalaus, hattlaus og syngj-
andi, eins og fullur sjóari. Hugsið ykkur, sonur Halls Halls-
sonar syngjandi fullum hálsi klukkan hálf fjögur að nóttu.
Það var ekki að sjá annað en hann væri sæmilega hátt uppi-
— Og ekki aldeilis einn — hí, hí, hí!“
Augun ætla út úr höfðinu á þeim Ernu og Soffíu. Kaffi-