Eimreiðin - 01.10.1954, Blaðsíða 33
eimreiðin
LEIKRITASKÁLDIÐ E. O’NEILL
265
lista, söngs og draums. Díonýsos goð ergi, drykkju, danzæðis,
taumlausrar lífsgleði og hrifningar, samkenndar allra með
öllum og samkenndar með öllum heimi. Það er þetta lífi
hlaðna veraldargoð, sem O’Neill reynir að dýrka í ýmsum
rnyndum í leikritum sínum fram að 1927.
Fyrsta leikritið, sem O’Neill skrifaði í þessum tilgangi var
The Fountain (1922—25) um landkönnuð spánskan á dög-
um Columbusar, er leitar lífsins brunns alla ævi, fer mjög
villur vegar, en birtist þó brunnurinn að lokum í fagursýn
rétt eftir dauða sinn.
Næst reynir hann að lóða dýptir tilverunnar eða að kom-
ast í sjöunda himin í hjónaást, sem hann lýsir í Welded
(1924). Þar í kvað vera ekki svo lítil sjálfsævisaga.
Þá skrifaði hann Only God’s Chillun got Wings (1924)
um annan blámann, sem að vísu getur aldrei losnað við
þjakandi áhrif umhverfis síns, en tekst þó í leikslok að
komast að sáttum við lífið í sambúð við konu sína, þótt hún
sé bæði ill og geggjuð.
I Desire under the Elms (1924) skapaði höfundurinn
bændafjölskyldu uppi í Nýja Englandi og lét hana lifa sem
dýr í skauti náttúrunnar, — heiðna, ágjarna, seka um losta,
sifjaspell, hórdóm, hefndir og barnamorð —, en þó lífsglaða
og lausa við alla samvizku af hinum díónýsiska dýrsleika
sínum. Er skemmst frá því að segja, að O’Neill tókst aldrei
áður né síðan að skapa svo heilsteypt fólk. Hér stingur
Freud fyrst upp kolíi hjá O’Neill. Fjölskyldufaðirinn er mesti
harðjaxl og ekki beint elskaður af syni sínum. Þegar hann,
sjötugur karl, fer út „að hórast“ og kemur aftur með unga
konu, þá leggst þessi unga kona með stjúpsyni sínum, sem
þangað til hefur verið mömmudrengur. Þau drepa barn sitt
til þess að koma í veg fyrir það, að karlinn reki son sinn
af jörðinni.
Marco Millions (1918—52) var að einu leyti árás á amer-
íska verzlunarmanninn, að hinu leyti lofgerð um austræna
speki á kostnað vestrænnar mammonshyggju. En það var
líka sorgarsaga austrænnar meyjar, er varð svo óhamingju-
söm að leggja ást við þessa guðsmynd Vesturlanda, Marcó
kaupmann. Að vísu virðist Marcó í öndverðu ekki vera með