Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1954, Side 26

Eimreiðin - 01.10.1954, Side 26
258 UM LISTSKÖPUN FYRR OG NÚ eimreiðin Hvers konar leikföng eru það, sem vér fáurn börnum vorum í liendur? Hvers konar list og bókmenntir eru það, sem vér gefum fólkinu? Hvers konar myndir eru það, sem vér sjáum á sýningum nú á dögum? Til eru listamenn, sem eru svo hræddir við klassiska fegurð, að þeir forðast hana eins og heitan eldinn, halda víst að þeir verði bendlaðir við tilfinningavæmni, veiti þeir slíkri fegurð nokkra viðurkenningu, og fara út í öfgar með öll form, svo að úr verður viðurstyggilegri óskapnaður en nokkurs staðar er að finna í sjálfri náttúrunni. Vér höfum gleymt, að bæði leikföng og list eru þau áhrifaríkustu uppeldismeðul, sem völ er á. Fyrr á öldum töluðu menn um „fagrar“ listir. Einkum var þetta mjög í tizku á rómantíska timabilinu. Ég hef áður bent á, að fegurðarþráin sé einhver máttugasta hvöt, sem með mönn- unum býr. Þessari þrá verður, hamingjunni sé lof, ekki útrýmt úr sálum mannanna, til þess er hún allt of sterk. Þrátt fyrh' allt illgresið, sem nú vex á akri listanna í stærra mæli en nokkru sinni áður, þá er áhugi almennings fyrir þeim samt meiri en nokkru sinni áður. En sá hluti fólksins, sem ekki telur sig sérfræðinga í listum, og það er langsamlega meiri hlutinn, dáir meir listaverk fyrri alda, enda þótt vanabundin þyki, en hina ruddalegu og afkáralegu listframleiðslu nú á tim- um. Fólkið rís nefnilega ætíð fyrr eða síðar ósjálfrátt upp gegn öllu, sem er sjúklegs eðlis. Og afkáraskapurinn í listinni er geð- sjúkdómur, sem því miður dregur fórnardýr sín allt of oft til andlegs dauða, gerir þá að glópum og list þeirra að hismi og hégóma. Höft og bönn koma að engu gagni i þessum efnum. Endur- bótin verður að koma af frjálsum vilja. Listamenn og rithöf- undar bera sjálfir ábyrgð á verkum sínum, og sú ábyrgð er geigvænleg. Skyldur þeirra til að bæta og göfga samtíð sina eru óendanlega mikilvægar. Þeir mega því ekki lengur bregðast henni. Sá, sem vill leggja hönd á plóginn, má ekki standa að- gerðarlaus og bíða eftir því, að aðrir hefjist handa, heldur byrja sjálfur. Aldrei hafa listamennirnir haft þyngri ábyrgð að gegna en í samtíð vorri, þar sem hver höndin er upp á moti annarri. Baráttan verður að koma innan frá í kyrrþey, þvl

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.