Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1954, Side 35

Eimreiðin - 01.10.1954, Side 35
eimreiðin LEIKRITASKÁLDIÐ E. O’NEILL 267 Þó má kannske líta svo á, að leikurinn Dynamo (1929) sé að nokkru leyti framhald af þessum trúarleikjum, því að söguhetjan í Dynamo er látin risa upp gegn íhaldssömum púrítana-kristindómi föður síns, taka trú á rafmagn og dýnamó, gera þessi öfl að raf-móður veraldar og dýrka hana með skírlífi. En hér bera þó andstæðurnar, faðir og móðir sem goðverur, þess vott, að leikurinn er að hálfu leyti inn- blásinn af kenningu Freuds, og einmitt sú kenning, sálrýnis- fræðin, er grundvöllur hinna tveggja stórvirkja O’Neills, bæði í bókstaflegum og andlegum skilningi: Strange Inter- lude (1928) og Mourning Becomes Electra (1931). Skal nú dvalið við þessa leiki tvo. 5. Strange Inten'lude (1928) er saga prófessorsdóttur, sem Nína heitir. Faðir hennar hefur ekki viljað láta hana giftast kærastanum, sem var á leið í stríðið og féll. Ástæðan: um- hyggja á yfirborði, afbrýði undir niðri. Þegar Gordon, kær- astinn, fellur, ásakar Nína sig fyrir að hafa ekki gefizt honum og átt með honum barn. Til að bæta fyrir þetta gerist hún hjúkrunarkona og gefur sjálfa sig sjúkum og fötl- uðum hermönnum, en uppgötvar fljótt, að það hjálpar lítt til að friða taugar hennar og samvizku. En þar kemst hún í kunningsskap við gamlan vin Gordons, Evans, sem verður ástfanginn af henni, og kunningja hans, Darrell lækni, sem ráðleggur henni að ganga að eiga Evans og eiga böm með honum. Faðir hennar er þá dáinn, en gamall húsvinur, rit- höfundurinn Marsden, gengur henni sem næst því í föður stað. Þessi ráð fara fram, en þegar allt er klappað og klárt, kemur það upp úr kafi, að geðveiki er í ætt Evans, svo að hann má ekki eiga börn. Hann veit það ekki sjálfur, en móðir hans segir Nínu það. Þá dettur Darrell lækni það snjallræði í hug að eiga barnið sjálfur með henni. Það á að vera í til- raunaskyni, en tilraunin heppnast of vel, því að nú verða bæði ástfangin hvort af öðru. Þannig býr Nína nú um hríð með þessum tveim eða þrem mönnum, en sá fjórði er sonur hennar og Darrells, er hún kallar Gordon, eftir fyrsta kær- asta sínum. En þegar Gordon er fullvaxta, hefur ástin til föður hans löngu dofnað, en móðurástin snýst í afbrýði, þegar Gordon fær sér kærustu. Er síðasti þáttur um það,

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.