Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1954, Page 46

Eimreiðin - 01.10.1954, Page 46
278 FÖRNIN eimreiðin Stúlkan losaði sig úr greipum hans, kuldaleg á svip, og færði sig inn í skuggann til gömlu konunnar. Henni gazt ekki að þessum Trian. Það voru ýms leiðindi því samfara að vera ferðafélagi frú Jordan, systur hans, en það var of seint að hugsa um það nú. Flutningsvagn, sem hafði jafnan verið í hæfilegri fjarlægð á eftir fólksbifreiðinni, kom nú upp stíginn og staðnæmdist við rústirnar. Tveir þjónar komu út úr vagninum með matarkörfur og ábreiður. Þeir breiddu dúka á grasið og röðuðu matnum á þá. Þetta voru þaulvanir framreiðslumenn. Frú Jordan, sem til þessa hafði ekki mælt orð af vörum, horfði soltnum augum á matinn og tók þegar í ákafa að troða upp í sig með fingrunum smurðu brauði. Helena horfði á hana, með samblandi af meðaumkun og við- bjóði í svipnum. Pritam Singh stóð álengdar. Bláa skyrtan hans var opin í hálsmálið. Hann stóð þarna og horfði út í tómið. Þessi fjarræni bragur, sem yfir honum hvíldi, verkaði eins og veggur milli hans og ferðafólksins. Alla leiðina í bílnum hafði Trian sífellt verið að tala um Ind- verja, siði þeirra og trúarbrögð, og mátti auðveldlega kenna lítils- virðingar í röddinni. En Pritam Singh hafði stöðugt leitt skraf hans hjá sér með stakri kurteisi. Helena dáðist að honum. Stóð honum ef til vill alveg á sama um hvað sagt var, eða var hann kannske að grímuklæða sinn innri mann gagnvart útlendingunum? Rósemi hans virtist hafa æsandi áhrif á Trian. Honum fannst hann þurfa að kveða fastara að orði. „Þetta er auma landið,“ sagði hann með fyrirlitningu, „og þykist geta verið sjálfstætt! Já, ekki vantar það, nú geta landar þínir drepizt úr hungri í friði, án útlendrar íhlutunar." Pritam Singh sat sem áður hljóður og svaraði ekki. Gremjan sauð í Trian. Gat hann ekki svarað, þessi steingervingslegi Ind- verji? Hann skyldi verða að svara. Ég skal fá blóðið til að þjóta fram í kinnarnar á þessum þrjót. Ég skal fá augu hans til að skjóta gneistum, hugsaði Trian, veifaði hendinni, benti á skrælnaða jörðina og hélt áfram: „Hungursneyð, flóð, farsóttir, eymd og alls konar spilling, fólks- mergðin húsnæðis- og matarlaus, af þessu getið þið státað. Síðan við fórum héðan, hefur skort allan aga. í staðinn hafið þið ekki fengið annað en valdagráðuga stjórnmálamenn til að rífast við án árangurs. Og svo dirfist þið að setjast í alþjóðaöryggisráð til þess að segja öllum heiminum fyrir verkum, — þið með öll ykkav

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.