Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1954, Page 66

Eimreiðin - 01.10.1954, Page 66
298 ÓLYGINN SAGÐI MÉR eimreiðin aði. Þó var langt í frá, að þorpsbúar væru búnir að fyrirgefa Bertu, að hún, dóttir Kötu í Innri-Vík, blásnauðrar ekkju, sem hafði verið á hreppnum síðastliðinn áratug, skyldi leyfa sér að nappa sjálfan sóknarprestinn, fínan mann að sunnan! Þær voru svo sem nógu sleiktar við Bertu sjálfa, kerling- arnar. En fljótlega fór það að kvisast, að séra Öfeigur væri ekki meira en svo ánægður í hnappheldunni. Ólyginn hafði jafnvel fullyrt, að guðsmaðurinn liti í kringum sig, þegar tækifæri byðist, jafnvel meira en góðu hófi gegndi. En slíkar sögur fóru ekki hátt. Og eitt var að minnsta kosti víst, að frúrnar í þorpinu gátu vel heimsótt frú Bertu, drukkið hjá henni kaffisopa og spjallað um daginn og veginn, þrátt fyrir allar hvíslingar. Svo var líka mál með vexti, að frú Berta, sem sjálf hafði verið aðalumræðuefni ótal saumaklúbba og var meira að segja hreint ekki ókunnugt um það sjálfri, var engu síður gefin fyrir að láta gamminn geisa en kynsystur hennar. Hún þótti jafnvel hafa hvassari tungu en flestar og taka meira upp í sig en sumum fannst viðeigandi af konu í hennar stöðu. Betri stofan á prestssetrinu — Kirkjuhvoli — er uppljóm- uð. Séra Ófeigur hefur farið inn á Dal að skíra barn og er ókominn enn, og það er saumaklúbbur hjá frú Bertu. 1 stof- unni sitja fjórar heldri konur úr þorpinu, auk frú Bertu, frú Erna, kona Ara í Nýjabæ, frú Soffía í Vík, Halla kona bakarans og Gróa kaupfélagsstjórans. Þær eru allar með handavinnu, útsaum, hekl og þess háttar. Verkið gengur þó fremur seint, enda er margt, sem tefur, fyrst og fremst hin hefðbundna kaffidrykkja, en prestsfrúin er einmitt 'að hella upp á könnuna í þriðja sinn. Þéttur sígarettureykur smýgui’ út í hvern krók og kima stofunnar. Svo þurfa blessaðar frúrn- ar að spjalla ofurlítið, eins og venja er á klúbbkvöldum, og það tefur stundum ögn fyrir. Allar hafa þessar frúr liðugan talanda og eru ófeimnar við að leggja orð í belg um hvaða viðfangsefni sem er, enda þótt þær séu samankomnar í húsi sálusorgarans. Erna í Nýjabæ er í essinu sínu í kvöld. Aðalumræðuefnið er ballið í fyrrakvöld og ýmsir atburðir í sambandi við það- Annars er þessum heiðurskonum fátt mannlegt með öllu

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.