Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1954, Side 73

Eimreiðin - 01.10.1954, Side 73
LEIKLISTIN Silfurtunglið eftir H. K. Laxness. Lokaðar dvr eftir Wolfgang Borchert. Erfinginn eftir Ruth og Augustus Göts. Þjóðleikhúsið hóf starfsemi sína á þessu hausti með skop- leik (farce) eftir Halldór Kilj- an Laxness, skopleik, samkvæmt umsögn hans sjálfs í viðtali við blaðamenn, en ekki með öllu sneyddan harmi, enda enginn vafi á því í lokaþættinum, að þar hefur harmleikurinn yfir- höndina, silfurtunglið líka orð- ið þar minnkandi tungl og myrkvað. Mr. Peacock, forstjóri í llni- versal Concert Inc., London— París—New York (gæti alveg eins verið Moskva—Peking— Prag), er æðsti drýsildjöfull allrar þeirrar sýndarmennsku og sölugræðgi, sem auðkennir viss- ar tegundir listfyrirbæra — og bókmennta — á vorum dögum, og engan veginn óefnilegur full- trúi þeirrar vitfirringar, sem höfundurinn hyggst lýsa. Við- skiptavinur hans og auðmjúk- ur þjónn, Feilan Ó. Feilan, fetar dyggilega í fótspor húsbóndans, enda ankannalegur í meira lagi, >,fetishisti“ með fleiru, svo sem kvenbuxna-kómedían í þriðja þætti vottar svo viðhafnarlega, en fómarlamb hans, Lóa, gift kona og móðir, bíður hræðilegt skipbrot á sínum leyndu draum- um og þrám og verður óafvit- andi og óbeinlínis orsök í dauða einkabarns þeirra hjóna. Hana Lóa (Herdís ÞorvaldsdóttirJ og Feilan Ó. Feilan (Rúrik Har- aldssonJ. dagar bókstaflega uppi í leiks- lok, svo að hún verður að nátt- trölli, þó að þeirrar glætu megi kenna þar einnig, að ef til vill takist manni hennar að leysa 20

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.