Eimreiðin - 01.10.1954, Page 78
FÖLK Á STJÁI. Smásögur eftir
Jakob Thorarensen. Rvík 1954
(Helgafell).
Margir telja Jakob Thorarensen
fyrst og fremst ljóðskáld, og ekki vil
ég neita því, að hið mikla vit hans
nýtur sín kannske bezt og djúp-
skyggni hans í mannlegar sálir nær
lengst i sumum kvæða hans. Þó er
hann enginn eftirbátur annarra i
sagnagerð. 1 heildarútgáfunni 1946
eru 21 saga, Amstur dægranna 1947
eru 9 sögur. Og í ofannefndu sögu-
safni nú í haust eru 12 sögur. Það er
engin hætta á því, að Jakob Thor-
arensen sendi frá sér annað en góðar
bókmenntir. Harrn tekur köllun sína
sem skáld og þulur alvarlega, vandar
allt vel, bæði ljóð og sögur.
Ég vil ekki segja, að allra beztu
sögur Jakobs Thorarensen séu i þessu
safni, að undanteknum tveim eða
þrem sögum, sem allir munu telja i
fremstu röð sagna hans. Málfæri höf-
undar og stíll auðkennir allar sögurn-
ar, svo að ekki verður um villzt, en
efnislega er nokkur annar blær á
sumum þeirra en fyrri sögum hans.
Bókin hefst á sögunni Hvíld á há-
heiöinni. Það er saga um langrækni
og hatur, sem telja má einhvem ljót-
asta eiginleika mannsins. Vægðarlaus
saga og dimm, ekkert gefið eftir, mjög
góð í sinni röð. Næsta sagan heitir
Dökkar horfur. Vei gerð saga um
vissa tegund mannskepna og makleg.
— Valkyrjan og HuliSsöfl og hindur-
vitni eru eftirtektarverðar sögur uo
óhappaskip og álagastað. Ráða þar
öfl, sem ekki virðast standast svo-
nefnt náttúrulögmál, en öfl, sem þ°
munu vera til. Því hvar eru tak-
mörk fyrir því, sem getur skeð og
því, sem trúin fær áorkað? — Sóma-
vendni er ágæt saga um eina vissa
tegund manna, fín og vel gerð mynd,
svo að varla verður betur gengið fra
þvi efni. — Þá kemur Kölkun, sein
nokkuð líkist annarri afbragðssögiu
sem Jakob hefur áður gert, er varla
eins góð og fyrri sagan, þegar á allt
er litið, en samt ein af beztu sögunum
í bókinni. Gisting á Tryppamýri er
djörf saga og nýstárleg um sérvitnng
einn og nirfil, nálgast hið ótrúlega,
ef skoða ber manninn með fullu viti
(eða svo miklu viti, að hann meg1
ganga laus). Andstætt viShorf er
ágætlega gerð saga og VíSa HgSIa
vegamót er sennilega bezta sagan 1
bókinni, þegar á allt er litið, bum
öllum kostum góðrar sögu. — i'yru
rannsóknarrétti er góð sálfræðileg
lýsing á eldri konu, sem verður þeSá
vör, að drengur, sem hún hafði tekið
ástfóstri við, er orðinn fullgildur og
sprækur karlmaður og trúlofaður.
Fleiri góðar sögur eru í bókinm.
Eins og áður er sagt, er nokkm
annar blær á efni margra af þessum
sögum Jakobs Thorarensen en fj'111
sögum hans. Ekki tel ég þetta ókost,