Eimreiðin - 01.07.1956, Síða 30
182
EIMREIÐIN
lífsloft. En þeir þurfa að hafa efni á að kaupa bækur, ferðast
mikið og reyna margt, því að þeir þurfa margt að vita og
fylgjast með öllu vel. Þeir þurfa að kunna sögu sinnar þjóðar
betur en aðrir menn, kynnast nýjustu rannsóknum í mörg-
um greinum, því að þeir eiga að vera spámenn og spekingar,
efla drenglyndi, göfga lundarfar þjóðarinnar, vera andlegir
leiðtogar, laða og leiða kynslóðirnar með hrífandi ljóðum og
myndum, söng og sögu fram til betra og fegurra mannlífs-
Þeir eiga að aga.....
„Heyr á endemi" mun nú einhver segja. „Þeir ættu þá að
kunna að aga sjálfa sig.“
Satt er það. Oft hefur orðið misbrestur á því. Oft hafa
listamenn hlustað of lengi á Lorelei. Oft hafa þeir setið of
lengi að sumbli í höll Bakkusar. En vondir menn eru þeir
aldrei. Mönnum verður oft starsýnt á þá af því, að þeir stíga
hærra í gleði og falla dýpra í sorg. Þeir eru hrifnæmari en
aðrir og oft hrösulli í æstri leit að gleði, fegurð og fróðleik.
En vondir menn eru þeir aldrei.
Guð er í listinni og agar og hryggir og gleður og göfgar
sína iðkendur og aðdáendur. Listamennirnir vilja fá okkur
til þess að liita þeim guði, tigna hann og fylgja honum. Og
er þetta engin afguðadýrkun, heldur lögmáli bundin, lítræn
þróun siðmenningarinnar. í brjósti hvers einasta manns
blundar þrá til göfugra lista. Þetta er guðdómlegt náttúru-
lögmál, sem kemur æ skýrar í ljós eftir því sem fleiri tæki
eru fundin upp til þess að taka við oki stritsins og menn fá
fleiri tækifæri til þess að líta upp, horfa í kringum sig og
brosa, finna til og lifa. Þá rnunu menn smám saman leggj3
meiri stund á margs konar listir, og allir verða einhvers
konar listamerin, miklir listamenn. Það er takmark mannlífs'
ins á jörðunni, fagurt og hátt og hæfilegt eilífum anda 1
endalausum geimi.
☆ ☆ ☆
Dýrð stjarnanna ljómar á liæstu tindum og í dýpstu dölum. Vér getum
horft á liimininn nteð jörðina undir fótum, og vér getum lundið svip
þess fagra og háa í því, sem smátt er, ef vér höfum einu sinni skynjað
sál náttúrunnar.
Einar Benediktsson.