Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1956, Page 35

Eimreiðin - 01.07.1956, Page 35
KOSS 187 hálfgerðri leiðslu og án þess að nokkur vilji eða áhugi væri fyrir því, alveg eins og ég gekk að hverju öðru verki á þeim dapurlegu dögum. Ég hafði ekki komið út fyrir bæinn í tvö ár. Og svo settist ég inn í vagninn. Ég held, að þetta hafi verið gamall strætisvagn, og virtist hann mjög hrörlegur. Það var gangur eftir honum miðjum og sneru sum sætin hvert á móti öðru, þannig að sumir farþeganna horfðu fram, aðrir aftur. Öll fremstu sætin voru upptekin, þegar ég kom, en aftarlega í vagninum fann ég eitt sæti, sem enginn sat í. Að vísu sneri það þannig, að ég horfði aftur — en mér var alveg sama um það. Ég leit á enga, sem í vagninum voru, meðan ekið var út úr bænum, brá ekki vana í því. Fólk kom mér ekki við. Bakpokinn með nestinu, svo og svefnpokinn, hurfu mér. Ég gerði ráð fyrir, að vagnstjórinn, er jafnframt reyndist vera far- arstjóri, hefði komið farangri mínum fyrir í geymslurúmi aftur í vagninum. Mér var raunar svo yndislega sama um þetta allt. Við hlið mér — sætin voru aðeins fyrir tvo — sat langur maður og mjór. Hann yrti á mig einu sinni eða tvisvar á leiðinni upp að Rauðavatni, en ég mun hafa tekið lítt und- ir, og hann þagnaði. Annars var mikið skrafað í vagninum. Élest fólkið var ungt, um eða lítið yfir tvítugt. Ég geri ráð fyrir, að langi maðurinn og ég höfum verið elztu mennirnir, auk vagnstjórans, sem var langelztur allra, sem þarna voru saman komnir. Það var dumbungsveður, skýjað ágústdagsveður, þurrt ennþá, en útlit ekki gott. Þegar austur yfir fjallið kom, létti þó heldur til, og er upp úr byggð var komið, var fagurt veður, sólskin og logn. Mér var þungt í skapi að vanda. Ég hafði lítið sem ekk- ert sofið undanfarnar nætur, var þungur í höfði, og þrátt fyrir það, að ég tók á öllu mínu þreki — það hefur kannske ekki verið mikið — sótti hið ógnþrungna þunglyndi að mér, svipti til í huga mínum og bar eld að viðkvæmustu hjartarótum. Við Gullfoss var staðnæmzt. Þá varð mér fyrst litið á þann, er sat á móti mér —, og ég hrökk við. Það var stúlka, há og grönn, í grárri peysu og buxum úr dökkrauðu efni, með

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.