Eimreiðin - 01.07.1956, Qupperneq 66
218
EIMREIÐIN
kurt og pí hverja einustu nótt? Hvað geturðu þá lieimtað
meira?“
En hún vildi, að hann byði henni út með sér, hún vildi fá
föt, hún vildi ferðast; hún vildi ekki vera eins og þessar al-
múgakonur í námudalnum, sem aldrei komu út fyrir hússins
dyr, nema þegar þær skruppu í búðir eða fóru til kirkju. Þau
höfðu rifizt og skammazt. En þessi tvö ár höfðu nægt til að
yfirbuga hana. Dalurinn var fyrir karlmennina, — drykkju-
krár, tímadrepsstofur, hundaveðhlaup og knattspyrnuvelli'',
— allt var þetta eingöngu fyrir karlmennina.
„Fyrirtækið greiðir yður áreiðanlega skaðabætur, það tel
ég vafalaust,“ sagði herra Rowland til að segja eitthvað. Hann
hugði, að það værir lyrir lostið og hinar margvíslegu aðsteðj-
andi áhyggjur, að augnaráð hennar varð svo fjarrænt.
„Hvað miklar?"
Herra Rowland velti vöngum.
„Það þarf nú að fara fram rannsókn og gera sanminga áður
en það kemst í lag.“ Dapurleiki atburðanna gerði hann þreytu-
legan og fölan ásýndum, en margra ára reynsla af námu-
slysum liafði liert liann. Svo var guði fyrir að þakka, að kona
Sams tvífingraða missti ekki taumhald á geðsmunum sínum,
eins og svo mörgum konum hætti við, þegar svona stóð a,
einkum þeim yngri. Hann reis seinlega úr sæti sínu til að
halda áfram ferð sinni og tilkynna hinum tveim ekkjunum
Jressa harmafregn. Mennirnir lágu í sinni myrku gröf — leyst-
ir frá sorgum þeirra lifandi. Megan Pugh var skynsöm. Hún
var ekki að krefjast þess, að það yrði að finna J^á látnu og
fá þeim legstað í vígðri mold.
Megan læsti útidyrunum á hæla honum. Hún vildi vera
laus við samúðarheimsóknir nágrannanna. Það var svo margt,
sem nú krafðist rækilegrar umhugsunar. Hún var að öllu
leyti óbundin. Ekki voru börnin til að aftra henni. Þeir voru
liðnir, Jjessir eyðidagar.
Morguninn eftir var hún árla á fótum, og um hálftm
leytið hafði lnin tekið sér sæti í einum af sporvögnunum,
sem héldu uppi ferðum á milli námuhverfanna í dalnum-
Júlísólin skein í heiði. Það mundi verða dásamlegt að dveljast
úti við hafið, ef Jressi blessuð blíða héldist.