Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1967, Page 101

Eimreiðin - 01.01.1967, Page 101
EIN FORKOSTULEG HISTORÍA UM SANNSÖGULEGAR PERSÓNUR 81 vott andlegrar áveitu rninnar á flóalendi æskunnar. Og sprettuna hefir þú þegar séð eða kynnst! — Má hér telja, að ég sigli beggja skauta byr, og sé jafnsnjall á báða bóga: rímað mál og órímað, allt eftir innblæstri listarinnar, fagur- lega og sérfræðilega samanblandað og mannsæmandi íslenzkri menn- ingu! Er þetta t. d. mjög áberandi í hinu nýja ljóði mínu: Útsýn tif Vaðalheiði: Ég segi skáldum til syndanna og sýni þeint rétta leið um Iífsins gönuskeið. A vængjum allra vindanna ég lyfti þeim svo hátt yfir hæstu toppa tindanna. — unz himininn stendur í hálfa gátt og opinn öllum þeim, sem undirritaður skákar uppá sinn Kögunarhól. fyrir austan mána og sunnan sól! Æri-Tobhi: „Æi, er þetta nú ekki hálfgerð ólekja, Drómundur minn? Hvorki almennilega þykkt né þunnt. Og léttmeti hlýtur það að reynast í himnaförum þínum og pilta þinna.“ Drómundur: „Talaðu varlega nm háfleyg efni, karlfauskur! Þetta gengur auðvitað hátt yfir þoku- haus þinn, unz eitthvað rofar til í kolli þínum! — En heyra skaltu framhaldið. — Ekki er það síðra: Svo koma þeir allir til mín með upptíninginn sinn! Ungir, stæltir tin-dátar með skegg-hýjung á höku og kinn. Á abstrakt-tölti og atóm-spretti í iibermannschen dúr! — Hlusti nú allir á ntig, — herrar rnínir og frúr! (æ-i, afsakið!) hve frjótt er landsins listamál, — — og menntamál, — í minni fleygu sál; Heyr, hve ungu skáldin, sent hjá mér voru í kúr, eru nú ajour! Og nú hefir þú þegar heyrt sitt af hverju tagi á hinum ýmsu plön- um há-listar, Tobbi kall! Og von- andi opnast þín andlegu asnaeyru fyrir ágæti því öllu og olursnilli, áður en yfir lýkur!“ Æri-Tobbi: „Heyrt hefi ég að vísu um handleiðslu þína á hirð- fíflum þínum, og hverju þau skila aftur úr öræfagöngu sinni. — En heyra vildi ég að lokum, hversu þú yrkir frá eigin brjósti, er and- inn hrífur þig uppá hátind Kög- unarhóls, þar sem himnasprettur þinn virðist hafa byrjað. Og muntu nú allhátt kominn, þar sem sporrekjendur þínir hafa komið að himninum í hálfa gátt! Og senni- lega ert þú þá kominn alla leið uppá háaloftið!" Drómundur: „Satt er það, Æri- Tobbi. — Allhátt hefi ég komizt, svo að vart munt þú fylgja mér eftir. En þó mun ég að lokum lofa þér að heyra kafla úr mínu nýjasta stjörnuljóði, því að fátæklegt verð- ur og tilbreytingarlaust að halda sig eingöngu á flatlendi og eyði- söndum lífsins. — En vissara er, að þú lokir augum þínum, svo að þig svimi síður, er í hæðirnar dregur. Og hlusta nú á Ijóð þau, sem mér eru sérstaklega veljróknanleg. — Er hið fyrra eiginlega einskonar afar háfleygt framhakl af Útsýn frd Vaðalheiði og hljóðar þannig: 6
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.