Eimreiðin - 01.05.1968, Blaðsíða 16
88
EIMREIÐIN
og sótti oft fjármál sín af meira
kappi en rétti. í Sturlungu er
sagt frá f járdráttarmáli einu árið
1215, er Snorri kom við og hafði
mikla virðingu af; og hefur þess
verið getið til, að þá hafi hann
eignazt Bessastaði, en sennilegra
mun, að Snorri hafi keypt Bessa-
staði, og benda ummæli ein í
Sturlungu til þess. En er að
Snorra þrengdi í Borgarfirði,
leitaði hann sér hælis á Bessa-
stöðum.
Eftir víg Snorra Sturlusonar
1241 tók Hákon gamli Noregs-
konungur undir sig Bessastaði,
sem urðu síðan um margar aldir
aðsetur norska og síðan hins
danska konungsvalds á Islandi. I
bók sinni um Bessastaði, sem tit
kom 1947, segir Vilhjálmur Þ.
Gíslason, fyrrurn útvarpsstjóri,
að það megi lieita kaldhæðni ör-
laganna, að ein af höfuðeignum
hins mesta höfðingja þjóðlegrar,
íslenzkrar menningar skyldi
verða virki erlends konnngsvalds.
Um 1340 verða Bessastaðir
fastur aðsetursstaður umboðs-
manna konungs og eins konar
annar höfuðstaður landsins, mið-
stöð hins erlenda valds, en Þing-
völlur var hinn höfuðstaður ís-
lands, enda þótt segja megi, að
biskupsstólarnir væru það einn-
ig-
Á fimmtándu öld koma Bessa-
staðir oft við sögu erlendra ævin-
týramanna og ránsmanna. Árið
1420 kornu Englendingar til
Bessastaða, tóku hirðstjórann
höndum og drápu einn manna
Iians og særðu aðra. Tveimur ár-
um síðar, árið 1422, gengu Eng-
lendingar á land \ ið Bessastaði,
drápu menn og eyddu garðinn
og 1425 komu enskir menn þar
enn, tóku höndum hirðstjórana,
sem þá voru tveir, þeir Hannes
Pálsson og Balthazar, og höfðu
með sér til Englands.
í upphafi 16du aldar fóru Eng-
lendingar enn með yfirgangi og
ránum um landið, og var jafvel
um það talað, að þeir ætluðu að
leggja ísland undir sig. Árið
1512 drápu þeir hirðstjórann,
Svein Þorleifsson og ellefu menn
hans. Þá tóku enskir menn kaup-
skip í höfn með allri áhöfn. Út
af þessu varð mikil rekistefna og
milliríkjamál, og upp úr þessu
setti Danakonungur til hirð-
stjórnar á Islandi alkunnan sjó-
garp, Sören Norby. Hann sat á
Bessastöðum, og er sagt, að hann
hafi fyrstur orðið til að sigla upp
Seyluna, er síðan varð liöfn
Bessastaða.
Sá maður, sem einna mestar
sögur fara af á Bessastöðum um
miðja 16du öld, er kóngsfóget-
inn Diðrik von Mynden. Hann
hafði verið alllengi á Islandi og
var af Þýzku bergi brotinn.
Bróðir hans, Kort von Mynden,
var lengi kaupmaður í Hafnar-
firði, og hefur þess verið getið