Eimreiðin - 01.05.1968, Qupperneq 24
96
EIMREIÐIN
einkennandi fyrir náttúru landsins, að jarðhita hefur orðið vart
á 700 stöðum og að jökull hylur 11% af yfirborði þess. Allt eru
þetta snarir þættir í náttúru landsins og er þó margt ótalið, sem
mótar íslenzkt náttúrusvipmót, svo sem fljót og fallvötn, hraun og
auðnarsandar.
Island er ekki frjósamt land og telja sumir það á mörkum hins
byggilega heims. En ísland býr yfir fjölbreytilegri náttúru, og
mikill hluti hennar er enn ósnortinn sökum fámennis þjóðarinn-
ar, strjálbýlis og erliðra samganga. — En nú stöndum við á tímamót-
um. Samgöngur til landsins hafa batnað og fara vaxandi, og greið-
færara verður með ári hverju um landið sjálft eftir því sem vega-
kerfið hefur orðið f jölgreinóttara og larartækin transtari. Svo helur
flugið komið til sögunnar og stytt ferðir til staða, sem áður voru úr
almannaleið. — Einangrun lands og öræfa er senn lokið. — hess
vegna er verndnn sérkenna landsins, — áttúruverndin, — nú meira
aðkallandi en nokkru sinni áður.
Náttúruvernd.
Ég hef nefnt orðið náttúruvernd, og er rétt að víkja nánar að,
hvað í því felst og tæpa lítillega á tilkomu þeirrar hugmyndar og
hreyfingar, sem að baki býr.
Með orðinu náttúruvernd í víðtæknstn merkingu, held ég að
átt sé við alla þá viðleitni, sem stuðlar að því, að náttúran fái sem
mest að halda sínu upprunalega frumstæða svipmóti ósnortnu,
ekki síst Jrau landssvæði og náttúrufyrirbæri, sem sérstæð eru talin,
— en auðvitað með fullu tilliti til vaxandi mannabyggðar og at-
hafnalífs.
Þessi viðhorf ern ævaforn. Segja fróðir menn, að meðal annarra
hafi jafnvel heilagur Franz frá Assisí á sínum tíma yrnprað á
þeinr. En samt er það ekki fyrr en á 19. öld, að málið fær byr nndir
vængi og náttúrufræðingar öðrnm fremur taka það upp á sína
arma og kveðja málstaðnum hljóðs. Þeir senr fyrstir ríða á vaðið,
eru Þjóðverjar og síðan Bandaríkjamenn.
Brautryðjendur.
Sá maðurinn, senr eiginlega er talinn vera höfundur nútínra
náttúrnverndar, var Þjóðverji. Hugó Wilhelm Conventz, fæddur