Eimreiðin - 01.05.1968, Blaðsíða 20
92
EIMREIÐIN
fyrsta íslenzka læknisefninu,
Magnúsi Guðmundssyni, og
hófst þessi kennsla haustið 1760.
Árið 1769 varð húsbóndi á
Bessastöðum Olafur amtmaður
Stefánsson eða Stephensen,
tengdasonur Magnúsar Gíslason-
ar. Olafur varð seinna stiftamt-
maður og settist að í Viðey. Þeg-
ar komið var undir lok 18du ald-
ar og íslenzkur maður varð stift-
amtmaður 1784, var orðin mikil
röskun í þjóðfélaginu af hallær-
um og óáran og flutningur mik-
ill á embættum og stöfnunum.
Stefnan var sú að safna miðstöð
valds og mennta á einn stað.
Bessastaðir urðu ekki fyrir val-
inu, heldur Reykjavík. Þar varð
miðstöð nýs athafnalífs og menn-
ingar.
Árið 1805 var latínuskóli þó
fluttur frá Reykjavík að Bessa-
stöðum, þar sem hann var um
fjóra áratugi. Ekki er unnt að
rekja hér sögu skólans, en við
liann kenndi margt lærðustu
manna íslands og þaðan komu
rnargir þeir menn, er fremstir
stóðu í menningar- og sjálfstæðis-
baráttu þjóðarinnar á öndverðri
19du öld.
Þegar skólinn fluttist frá
Bessastöðum til Reykjavíkur,
1846, bjó síðasti skólaráðsmaður-
inn, Þorgrímur Tómasson, þar
enn um skeið og hafði ábúð jarð-
arinnar. Sonur hans, Grímur
Thomsen, er fæddur var á Bessa-
stöðum 1820, skipti síðan á Belgs-
holti á Mýrum og Bessastöðum
1867, en þá hafði staðurinn ver-
ið í konungseign frá því 1241 —
eða 626 ár. Er Grímur Thomsen
lézt 1896 seldi ekkja hans Lands-
bankanum Bessastaði. Var sölu-
verð 12 þúsund krónur. Síðan
keypti séra Jens Pálsson Bessa-
staði og átti tæpt ár, er hann
seldi staðinn Skúla Thoroddsen,
er lengi liafði búið á Isafirði.
Skúli fluttist að Bessastöðum ár-
ið 1901 og setti þar prentsmiðju.
Þar gaf hann út blað sitt, Þjóð-
viljann, og allmargt bóka, eink-
um rímur, sem urðu vinsælar.
Húsfreyjan á Bessastöðum,
Theodóra Tlioroddsen, varð
þjóðkunnur rithöfundur.
Um tíma átti Jón H. Þorbergs-
son á Laxamýri í Aðaldal Bessa-
staði, og á þeim árum var Einar
H. Kvaran þar eitt sinn árlangt,
og þar lauk hann við skáldverk
sitt Sögur Rannveigar.
Árið 1927 keypti Björgúlfur
Olafsson læknir Bessastaði fyrir
120 þúsund krónur, og þar skrif-
aði hann bók sína Frá Malaja-
löndum, um dvöl sína á Jövu og
Borneó.
1940 keypti Sigurður Jónasson
lögfræðingur og fyrrum forstjóri
Tóbakseinkasölu ríkisins Bessa-
staði, sem hann ætlaði til bú-
rekstrar og verksmiðjurekstrar.
Gerði liann miklar jarðabætur,