Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1968, Page 20

Eimreiðin - 01.05.1968, Page 20
92 EIMREIÐIN fyrsta íslenzka læknisefninu, Magnúsi Guðmundssyni, og hófst þessi kennsla haustið 1760. Árið 1769 varð húsbóndi á Bessastöðum Olafur amtmaður Stefánsson eða Stephensen, tengdasonur Magnúsar Gíslason- ar. Olafur varð seinna stiftamt- maður og settist að í Viðey. Þeg- ar komið var undir lok 18du ald- ar og íslenzkur maður varð stift- amtmaður 1784, var orðin mikil röskun í þjóðfélaginu af hallær- um og óáran og flutningur mik- ill á embættum og stöfnunum. Stefnan var sú að safna miðstöð valds og mennta á einn stað. Bessastaðir urðu ekki fyrir val- inu, heldur Reykjavík. Þar varð miðstöð nýs athafnalífs og menn- ingar. Árið 1805 var latínuskóli þó fluttur frá Reykjavík að Bessa- stöðum, þar sem hann var um fjóra áratugi. Ekki er unnt að rekja hér sögu skólans, en við liann kenndi margt lærðustu manna íslands og þaðan komu rnargir þeir menn, er fremstir stóðu í menningar- og sjálfstæðis- baráttu þjóðarinnar á öndverðri 19du öld. Þegar skólinn fluttist frá Bessastöðum til Reykjavíkur, 1846, bjó síðasti skólaráðsmaður- inn, Þorgrímur Tómasson, þar enn um skeið og hafði ábúð jarð- arinnar. Sonur hans, Grímur Thomsen, er fæddur var á Bessa- stöðum 1820, skipti síðan á Belgs- holti á Mýrum og Bessastöðum 1867, en þá hafði staðurinn ver- ið í konungseign frá því 1241 — eða 626 ár. Er Grímur Thomsen lézt 1896 seldi ekkja hans Lands- bankanum Bessastaði. Var sölu- verð 12 þúsund krónur. Síðan keypti séra Jens Pálsson Bessa- staði og átti tæpt ár, er hann seldi staðinn Skúla Thoroddsen, er lengi liafði búið á Isafirði. Skúli fluttist að Bessastöðum ár- ið 1901 og setti þar prentsmiðju. Þar gaf hann út blað sitt, Þjóð- viljann, og allmargt bóka, eink- um rímur, sem urðu vinsælar. Húsfreyjan á Bessastöðum, Theodóra Tlioroddsen, varð þjóðkunnur rithöfundur. Um tíma átti Jón H. Þorbergs- son á Laxamýri í Aðaldal Bessa- staði, og á þeim árum var Einar H. Kvaran þar eitt sinn árlangt, og þar lauk hann við skáldverk sitt Sögur Rannveigar. Árið 1927 keypti Björgúlfur Olafsson læknir Bessastaði fyrir 120 þúsund krónur, og þar skrif- aði hann bók sína Frá Malaja- löndum, um dvöl sína á Jövu og Borneó. 1940 keypti Sigurður Jónasson lögfræðingur og fyrrum forstjóri Tóbakseinkasölu ríkisins Bessa- staði, sem hann ætlaði til bú- rekstrar og verksmiðjurekstrar. Gerði liann miklar jarðabætur,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.