Eimreiðin - 01.05.1968, Blaðsíða 28
100
EIMRF.IÐIN
seni eiga að bæta lífskjör og auka lífsþægindi fólksins, en ekkert af
þessu má þó rista ör í ásjónu íslands. — Þá eru það vatnsbólin.
Verndun þeirra og hins tæra íslenzka lindavatns er líka mikið hags-
munamál fyrir borgarana. Þessari tegund náttúruverndar er nú
gefinn sérlegur gaumur víða um lönd og er bráð nauðsyn, að ekki
sé látið arka að auðnu í þeim efnum hér á landi.
Samstilling manns og lands.
Við höfum hlotið þetta fagra land í arf. Við berum ábyrgð á að
skila náttúru þess óspilltri í hendur komandi kynslóða. Við verðum
að vekja samstillingu milli manns og lands. Að læra að líta á nátt-
úruna, sem eitthvað lifandi, jafnvel eitthvað heilagt.
Mannvinurinn og náttúruunnandinn Friðþjófur Nansen skrifaði
einhversstaðar í dagbókum sínum um náttúruna, sem „hvíldarstað
fyrir hina brennandi mannssál."
Og Dagur Hammerskjold mælti þau orðin:
„Nú eru fjallheimarnir að opnast. Og það þarf að ljúka þeim
upp fyrir fjöldanum. En jafnframt verðum við að gæta þess, að þá
verði engu spillt." — Og hann bætti við:
„Við þurfum að gera fjöllin að friðlandi og griðastað, þar senr
við njótum frístunda okkar, án þess að komandi kynslóðir glati
tækifæri til þess að upplifa þar einveru, kyrrð og hvíldina, sem
auðnin ein veitir."
Hér þurfa forustumenn í félagsmálum, ríkisvaldið og sveita-
stjórnir að mörgu að hyggja. Þeim er mikil ábyrgð á höndum. Ég
veit, að á öðrum sviðum er þeirn ljóst, hversu verðmætir þeir hlutir
eru margir hverjir, sem rekur á þeirra fjörur og þeir fara höndum
um. Ég hef skoðað flest byggðasöfn landsins. Þau geyma rnikinn
menningararf. — Þeir munir eru mannaverk. — En við megunr
heldur ekki spilla því, sem landið gaf okkur, auði íslenzkrar náttúru-
fegurðar og sérkennum. Við eru fátæk af fjármagni, en við eru rík
af náttúruauð. Okkar er að forvalta þann arfinn með forsjá. Þar
eiga allir landsnrenn nrikið og nrargbrotið verk fyrir höndum.
Við þurfunr helzt að eignast að minnsta kosti einn þjóðgarð í
hverjum landsfjórðungi og fjölda opinna útivistarsvæða. Við þurf-
unr að konra á aukinni ferðamenningu og bættri umgengni á tjald-
stöðum. Náttúruverndarsjónarmiða þarf að gæta í ríkara nræli við
skipulagningu landsbyggðarinnar og í vegagerð. Við verðum auk
nýrra laga um náttúruvernd að setja lög um byggingu sumarbú-