Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1968, Page 23

Eimreiðin - 01.05.1968, Page 23
ít,< Náttúruvernd í nútíma þjóðfélagi eftir Birgi Kjaran Náttúran. I stuttu máli verður svo viðamiklu efni, sem yfirskrift þessarar greinar ber, ekki gerð tæmandi skil, og því aðeins stiklað á stærri steinunum, þótt auðvitað kunni það hér sem víðar að orka tvímælis, hvað skiptir meginmáli og hvað telja beri til aukaatriða. Eg held því, að ekki sé óhyggilegt, í upphafi máls, að gera grein fyrir nokkrum hugtökum, eða öllu heldur þeim skilningi, sem ég legg í þau. Á ég þar fyrst og fremst við orðin náttúra og náttúru- vernd. Náttúra eins lands er margslungið mál og erfitt að skilgreina í einni setningu og trúlega oft betur lýst og túlkuð í ljóði, litum eða tónlist, heldur en hægt er að orða í mæltu eða rituðu máli. — Frá mínu leikmannssjónarmiði samanstendur liún af jarðgerð landsins, jarðsögu þess, gróðri, dýralífi, hafinu, sem að því kann að liggja, loftslagi og sjálfsagt fleiru. Þetta allt skapar landi ásjónu, sem við köllum náttúru. Ef fara á eitthvað nánar út í þessa sálma, er ef til vill ekki ófróð- legt að vita, að talið er, að hér á landi vaxi um sex hundruð jurtir. Hérlendis munu vera á annað hundrað fuglategundir og 60—70 tegundir steina og bergs hafa fundist á landinu. Eitt af sérkennum íslenzkrar náttúru er það og, að á íslandi munu fyrirfinnast um 100 eldstöðvar og þar af 30 taldar virkar enn. Þá er það ekki síður

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.