Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1968, Page 29

Eimreiðin - 01.05.1968, Page 29
NÁTTÚRUVERXD í NÚTÍMA 1‘JÓÐFÉLAGI 101 staða. Semja þarf skrá yfir þau landssvæði og náttúrufyrirbæri, sem ber að friða, að vísu á mismunandi hátt. sum hver vegna náttúru- fegurðar, önnur sökum fágætis og enn önnur með tilliti til vísinda- legrar þýðingar þeirra. — Það þarf að vekja áhuga skólaæskunnar fyrir náttúruvernd og gera efninu skil í náttúrufræðikennslubók- um. Ungmennafélög, skátafélög og önnur æskulýðssamtök ættu að taka náttúruvernd á stefnuskrá sína. Almenn náttúruverndar- félög þyrfti einnig að stofna sem víðast um landið. Margt fleira mætti upp telja, en hér verður látið við sitja, því að greinarkorni þessu er ekki ætlað að gera náttúruverndarmálun- um tæmandi skil, enda ógerlegt í svo stuttu máli. Tilgangurinn er líka fyrst og fremst að vekja áhuga landsmanna fyrir þeim og benda á aðsteðjandi hættur. Náttúruvemd er jákvæð stefna. Henni er ekki beint gegn neinu nema því, sem stuðla kann að eyðingu náttúruverðmæta landsins. Náttúruvernd er því ekki andvíg ræktun landsins, ekki heldur skóg- rækt eða sandgræðslu, ef náttúruverndarlögmál eru ekki brotin við slíkar aðgerðir. Náttúruvernd hefur þann einan tilgang, að vernda náttúru landsins, svo að þjóðin megi öll njóta hennar í sem ríkustum mæli. Og í tækniþjóðfélagi nútímans er þess meiri þörf en nokkru sinni fyrr. Mmtsbókasafnið á Mkureyrl

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.