Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1968, Síða 52

Eimreiðin - 01.05.1968, Síða 52
124 EIMREIÐIN tóku ungt fólk til fanga og gerðu að þrælum sínum og ambáttum, sem þeir þrælkuðu heima hjá sér eða seldu á þrælamörkuðum í ýms- um löndum. Margt af þessu fólki hefur sjálfsagt verið flutt nauðugt til íslands, er þá var sem óðast að byggjast. En fólkið í írlandi hefur auð- vitað verið skelfingu lostið við konm víkinganna, vágestanna og hugsað til þeirra á svipaðan liátt eins og íslendingar til Tyrkja á sautjándu öld, þegar þeir heim- sóttu ísland og frömdu þar sams konar illvirki og víkingar forðum á írlandi. En hvernig stendur á því, að Tyrkir fá last og heiftar- lmg, en víkingar lof og dýrðin, dýrðin fyrir sömu illvirki? Það er ekki nóg að svara: breyttir tímar, því að tilfinningar manna, sem fyr- ir meiðslum og rangindum verða, hafa aldrei breyt/t. Þetta fyrir- brigði með lof og last lifir enn á íslandi í ýmsum myndum. íslendingar eru lueyknir af því að vera afkomendur norskra vík- inga og vilja helzt ekki við annað kannast. En er þetta ekki heiðinn hugsunarháttur? Ég hef ekkert á móti því. í heiðnum lmgsunar- hætti má oft finna fagran dreng- skap og fagrar listir. Fyrir þúsund árum var það arð- vænlegur atvinnuvegur að fara í víking og meira en það. Það var nokkurs konar guðsþjónusta, sem byggðist á trúarbrögðum Ásatrúar- manna. Til skilningsauka og prýð- is fyrir greinarkornið að tarna verð- ur vísa Egils að setjast hér: Þat mælti mín móðir, at mér skyldi kaupa fley og fagrar árar, fara á brott með víkingum, standa upp í stafni, stýra dýrum knerri, halda svo til hafnar, höggva mann og annan. Svo kvað Egill barn að aldri, þótt vísan sé hvorki barnsleg né barnaleg. Hún er listaverk, lifandi lýsing á hæstu hugsjón ungra sveina í þann tíð. Já, höggva mann og annan, svona einn og annan. Maður heyrir hlakkið í görnum arnarins unga yfir að mega maka krókinn í mannsblóði. í raun og veru var þetta guðsþjónusta Ása- trúarmanna. Á bak við stendur Valhöll og Ásaþór með Mjölni, kraftinn. En gegn honum stóð nú í Irlandi Kristur með krossinn og kærleikann. Og skildi hvorugur annan. Síðan þetta var eru nú liðin þús- und ár. í þúsund ár hafa íslend- ingar kvakað og þakkað, eins og í þjóðsöngnum stendur, vér kvökum og þökkurn! Um árið 1000 voru nær 150 smá- konungar í írlandi og voru ríkin þá jafnmörg. Ekki hafa þau öll verið stór, því að allt landið er ekki nema 32000 fermílur, enskar. Til samanburðar skal minnt á, að fsland er talið að sé 39000 fermíl- ur, enskar. Erjótt var oftast á milli þessara smákónga, líkt og á íslandi á milli goðanna, vígaferli, en engar stórorustur. Um ár 900 höfðu írar ekki byggt neinar borgir. Fyrstu borgina byggðu víkingar í Dýfl-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.