Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1968, Page 75

Eimreiðin - 01.05.1968, Page 75
SKUGGA-SVEINAR 147 sem þú og flestir aðrir þekkja, sá opinberi, leyfilegi heimur, sá heimur sem skráður er á bækur. Þó hefur einstaka sinnum borið svo við að við höfum orðið að eldroki sem eytt hefur heilli heimsálfu og ef til vill kemur sá dagur fyrr en varir eða einhvern- tíma að við verðum að synda- flóði sem drekkir öllum þessum andskotans heimi ykkar, þessum heimi stöðugrar lýgi, þessari kölkuðu gröf. Og hvað kemur þá í staðinn, sagði ég. Ekkert. Kannski, sagði hann. Eða allt. Hann tróð síðustu flíkinni niðrí töskuna og smellti henni aftur. Svo rétti hann úr sér svo snögglega að hann virtist hafa hækkað um þumlung. Kannski verður það aldrei, sagði hann hvass í máli. En það verður alltaf á næsta leiti. Hvað sem allri ykkar velferðarlýgi og húmanískum tannkremsbrosum líður. Einn daginn drepurn við forseta í Dallas, annan trúboða í Kongó. Kannski einhvern sem við hötum eða öfundum, kannski bara einhvern sem stendur vel við höggi. Við erum þeir, sem þið alltaf rekið útí hornin, þar sem skugga ber á. Og við verð- um alltaf tilbúnir með hnífinn meðan einhver skuggi er til. Ég sneri við honum baki. Hittu mig úti á pöbb í kvöld, sagði ég um öxl. Við vorum nýkomnir að disk- inum þegar sá járnsvarti frá Máritíus kom til okkar. Við ætlum að marséra að Parlamentinu, sagði hann. Það er kröfuganga. Utaf hverju, spurði ég fyrir siðasakir. Hann sagði það stæði til hjá hvítum heimsvaldasinnum og kynþáttakúgurum í Ródesíu að hengja nokkra svarta fjölnis- rnenn. Þú kemur með okkur, sagði hann. Nei. Hann kom hérumbil uppí mig, og hvílík djöfuls svitastækja. Þú vilt þá láta hengja þá, sagði hann og röddin var menguð hljómlausri ögrun. Ætli þeir deyi ekki hvortsem- er, sagði ég. Hann leit á mig bólgnum aug- um og varð enn svartari í fram- an. Svo vék hann sér að Holm- gren. Kemur þú, sagði liann fálega. Svíinn drakk langan teyg. Má varla vera að því, sagði hann. Ég er að fljúga af stað til Kongó eft- ir svosem klukkutíma. Máritingurinn geiflaði losta- legar svampkenndar varimar fólskulega og yfirgaf okkur. Holmgren pantaði aftur í koll- una. Þessi heimur er á hraðferð til andskotans, sagði hann ófrum- lega og dæsti.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.