Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Side 70
BREYTT ATVINNULÍF OG FÆRNI STARFSMANNA
hafa samskipti við viðskiptavini en brottfallsnemendur. Um 62% svarenda þurftu
stundum eða oft að bregðast við erindum viðskiptavina í síma - 68% útskrifaðra og
55% brottfallsnemenda.
Notkun stærðfræði í vinnunni var könnuð með sex spumingum sem spönnuðu
sviðið frá einföldum reikningi, s.s. samlagningu, frádrætti, margföldun, deilingu og
einföldum mælingum, allt til rúmfræði og þess að leysa jöfnur. Tæplega 80% bæði
útskrifaðra og brottfallsnemenda voru í störfum sem reyndu á einfalda reiknings-
kunnáttu. Starfsmenn, t.d. í framleiðslu og þjónustu, virtust ekki þurfa að reikna
vexti eða reikna verð á vöru eða þjónustu. Lítill hluti svarenda þurfti að útbúa eða
lesa úr línuritum, eða aðeins 23% útskrifaðra og 9% brottfallsnemenda. Um 6%
svarenda sögðust hafa lent í vandræðum með, eða reynt að komast hjá því að
reikna í starfi, að meiri hluta karlar. Þeir voru að eigin sögn engu að síður flestir í
störfum sem reyndu á grundvallarfærni í stærðfræði.
Þessar niðurstöður um notkun á lestri, skrift og reikningi í vinnunni styðja
niðurstöður Howells og Wolffs (1991) um að notkun þessara fæmiþátta í starfi
tengist menntun starfsmanns.
Athyglisvert var að um það bil 20% viðmælenda þurftu ekki að nýta sér
kunnáttu í lestri og jafnmargir þurftu ekki að skrifa texta eða reikna í starfi. Sömu-
leiðis vekur athygli hversu lítill munur var á útskrifuðum og brottfallsnemendum í
þessum efnum. Sem dæmi má nefna að 18% útskrifaðra á móti 25% brottfalls-
nemenda töldu sig ekki þurfa að lesa neitt í vinnunni (sjá Töflu 3).
Tafla 3
Þurfa aldrei að lesa, skrifa eða reikna í vinnunni
Allir Útskrifaðir Brottfalls-
nemendur
Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi %
Aldrei að lesa, skrifa eða reikna 22 4 9 3 13 6
Aldrei að lesa eða skrifa 37 7 19 7 18 8
Aldrei að lesa 109 21 50 18 59 25
Aldrei að skrifa 91 18 32 11 59 25
Aldrei að reikna 93 18 41 15 52 22
Út frá þessum gögnum er ekki unnt að meta hvort svarendur notuðu ekki þessa
fæmiþætti vegna þess að þeir byggju ekki yfir þeim, af því að þeir kynnu ekki að
nýta þá við breytilegar aðstæður eða af því að störfin væru skipulögð þannig að
þau krefðust þeirra hreinlega ekki.
íslendingar virðast vera vel læs þjóð. í nýlegri könnun á læsi 14 ára unglinga í
32 löndum voru íslendingar í 6. sæti þegar reiknað var meðaltal allra prófþátta. Þeir
68
J