Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Side 71

Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Side 71
GERÐUR G. ÓSKARSDÓTTIR voru aftur á móti í efsta sæti í lestri fræðsluefnis og örfáum stigum lægri en efstu lönd í lestri sögutexta. Á hinn bóginn voru íslendingar fyrir neðan meðallag í lestri mynda og taflna, þ.m.t. línurit og kort (Sigríður Þ. Valgeirsdóttir 1993). Niðurstöður mínar sýndu að aðeins 17% svarenda voru í störfum sem reyndu á kunnáttu í að útbúa línurit og lesa úr þeim. Hjá þeim einstaklingum sem ekki lásu, skrifuðu eða reiknuðu í starfi sínu voru skoðaðar einkunnir í íslensku og reikningi á samræmdum prófum í 9. (nú 10.) bekk. Þær bentu ekki til þess að skortur á fæmi í þessum greinum hefði átt að hindra þá í að lesa, skrifa eða reikna í vinnunni. Þeir sem aldrei þurftu að lesa þar höfðu fengið meðaleinkunnina 5,2 í íslensku en heildarúrtakið hafði fengið 5,5. Þeir sem aldrei þurftu að skrifa á vinnstað höfðu fengið 4,8 í íslensku. Loks höfðu þeir sem aldrei þurftu að reikna í starfi fengið 5,2 í meðaleinkunn í stærðfræði en heildarúrtakið fékk 5,8. Athyglisvert var að hópurinn sem hafði lent í vandræðum með eða forðaðist reikning hafði aðeins fengið 0,5 undir meðallagi alls úrtaksins í einkunn í stærð- fræði á grunnskólaprófi (eða 5,3). Lestur, ritun og stærðfræði eru námsgreinar sem mikil áhersla er lögð á í skólum. Samkvæmt þessum niðurstöðum skiptir færni í þessum greinum máli í yfirgnæfandi meirihluta starfa. Sama á við um tjáningu, en ekki er eins vel ljóst hvernig þjálfun í þeirri grein er háttað í skólum. Frumkvæði og ákvarðanataka Því hefur verið haldið fram að í náinni framtíð þurfi nánast allir starfsmenn að geta tekið ákvarðanir um framleiðslu, þjónustu og sölu þegar þörf krefur (SCANS 1992, Commission on the Skills of the American Workforce 1990). Einnig eigi þeir að geta tekið frumkvæði og leyst vandamál sem upp koma (Camevale o.fl. 1988, Reich 1991). Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til að þeir ungu starfsmenn sem þátt tóku í henni séu hugmyndaríkir og hafi nokkra ábyrgð á vinnustað: Um 67% höfðu komið með nýjar hugmyndir til að bæta vinnuaðstæður starfsmanna, yfir helming- ur taldi sig hafa bryddað upp á nýjum hugmyndum til að bæta þjónustu (fremur þeir meira menntuðu) og um 37% hafði fengið nýjar hugmyndir til að auka fram- leiðslu. Athyglisvert er að yfir 78% höfðu bryddað upp á nýjungum til að spara tíma og gera verk einfaldari. Ekki er vitað hvort þessum hugmyndum var hrundið í framkvæmd. Um 22% svarenda sögðust aldrei þurfa að finna nýjar leiðir til að gera hlutina eða leysa vandamál í vinnunni, voru brottfallsnemendur og fólk með stúdentspróf fjölmennast í þeim hópi. Þegar viðmælendur voru spurðir hvort þeir þyrftu stundum að gera eitthvað í starfi sem þeir réðu illa við, nefndu 65% að þeir gætu átt í erfiðleikum með að taka ákvarðanir. Kannað var hvort frumkvöðlar leyndust í hópi svarenda. Athygli vekur að yfir 60% höfðu hugleitt að skapa sér starf sjálfir eða stofna eigið fyrirtæki - þar af voru yfir 61% karlar en aðeins 38% konur. Fjölmennastir í þessum hópi voru þeir sem voru með starfsmenntun eða háskólapróf. Um 12% svarenda höfðu látið verða af því að skapa sér starf og voru enn í því en 34% höfðu byrjað og hætt við eða mis- 69
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.