Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Blaðsíða 34

Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Blaðsíða 34
ÞEGNSKAPARMENNTUN grunnskólans sé meðal annars að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóð- félagi og að starf hinna einstöku skóla eigi að mótast af samsvarandi vinnubrögðum (1995, 2. gr.). Ef spurningin í öndverðu máli væri hins vegar skilin á þrengri hátt, sem svo hvort taka ætti þegnskaparmeimtim („citizenship education" eða „civic education" eins og hún er ýmist nefnd í alþjóðlegri skólamálaumræðu) upp sem skyldugrein í skólum, tækju vindar að verða tvíátta. Sú ákvörðun enskra stjórnvalda að festa þegnskapar- menntun í sessi sem sjálfstætt fag á 3. og 4. stigi skyldunáms (hjá 11-16 ára nemend- um) frá hausti 2002 vakti til dæmis hörð viðbrögð þar í landi og var allt í loftköstum milli fylgjenda og andstæðinga, ekki einungis á fræðilegum vettvangi heldur í dag- blöðum og ljósvakamiðlum, árin á undan (sjá t.d. McLaughlin 2000). Engu breytir þótt þegnvísi hafi verið tískuhugtak í stjórnmálafræði og stjórnmálaheimspeki í meira en áratug (Enslin og White 2003:110) og innleiðsla þegnskaparmenntunar hafi notið óskaleiðis hjá meirihluta skólamanna (McLaughlin 2000:542); ýmsir stjórnmála- menn, dálkahöfundar og foreldrar ráku upp ramakvein sem enn er ekki að fullu hljóðnað. Misklíðarefnin í Englandi áttu sér margvíslegar rætur. Sumir andmæltu og andmæla enn þessu nýja skyldufagi með uppeldis- og kennslufræðilegum rökum; aðrir bentu réttilega á að sú lýðræðishugsjón sem mótað hefur inntak þegnskapar- menntunar sé mun þrengri en almennasta skilgreiningin á lýðræði og að auki sögu- lega bundin hinni vestrænu (frjálslyndu) lýðræðishefð er kveði á um fulltrúalýðræði og alls kyns afmörkuð réttindi og skyldur. Hinir sömu ömuðust svo við þessari sér- stöku vestrænu hugsjón með ýmsum rökum: siðferðilegum, pólitískum og efnahags- legum. í næsta hluta ritsmíðar minnar ætla ég að stikla á helstu áhersluatriðum þegnskap- armenntunar, eins og þau birtast í menntaumræðu samtíðarinnar, og skipa henni í flokk meðal stefna og strauma í lífsleiknikennslu. Þá rifja ég upp helstu fræðilegu andmælin gegn henni, jafnt „íhaldssöm" sem „róttæk". Þetta undirbýr jarðveginn fyrir meginefni ritgerðarinnar sem er að rekja enn önnur róttæk andmæli gegn þegn- skaparmenntun, andmæli sem um hríð hafa leynst milli línanna í skrifum ýmissa for- kólfa beinaberrar lífsleikni, er ég hef áður nefnt svo (Kristján Kristjánsson 2001), þó að þau hafi af ýmsum ástæðum ekki verið skipulega orðuð og rökstudd. Með því að draga þessi andmæli fram, skerpa þau og skýra, vona ég að hægara verði um vik að leggja mat á gildi þegnskaparmenntunar - þó að það sé að vísu ekki beinn tilgangur þessarar ritgerðar. Lesendur gætu til dæmis spurt sig hvort íslendingar ættu að fylgja fordæmi Englendinga og taka þegnskaparmenntun upp sem sjálfstætt fag, í stað þess að láta hugsjónir hennar svífa líkt og holdlausan vatnaanda yfir lögum og námskrám grunnskólans. Öll umræða mín byggist á þeirri forsendu að höfundur og lesendur séu þokkalega sammála um að einhvers konar lýðræðismenntun skuli eiga sér stað í skólum (sjá t.d. McLaughlin 2000:546) - enda verður það ekki rökstutt hér frekar - en að eftir standi margvísleg álitamál um forgang og framkvæmd sem vert sé að hyggja að. 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.