Ægir - 01.02.1944, Síða 35
Æ G I R
65
á Leirunni, sem er ætlað að hefta framburð
innan úr fjarðarbotni í innri höfnina.
A Ólafsfirði voru hafnar byrjunarfram-
kvæmdir við hina fyrirhuguðu hafnargerð
liar. Var hafin byg'ging garðs seinni hluta
sumars. Var örðið mjög aðkallandi að gera
cinhverjar ráðstafanir þar til að hindra
malarburð að bátauppsátri og bryggju.
Á Dalvík var lokið við lengingu hafnar-
garðsins um 60 m, upp í 185 m. Er það
grjótveggur með steyptri krónu. Bryggjan
innan við garðinn og áföst við hann, var
lengd jafnmikið. Er bryggjan þá orðin
112,5 m og er dýpið við hana fremst 16
fet við stórstraumsfjöru. Kostnaður mun
nema 615 þús. kr.
I Neskaupstað var gamla bæjarbryggjan
endurnýjuð að nokkru leyti og undirbún-
ingur hafinn að byggingu nýrrar bryggju
nokkru innar við fjörðinn.
í Vzstmannaeyjum var unnið að smiði
nýrrar bátabryggju, vestan við Básaskers-
hryggju. Er gert ráð fyrir, að hún verði
fullgerð um 100 m að lengd og 10 m á
breidd. Var henni ekki lokið, en nokkur
hluti hennar samt tekinn i notkun.
í Iíeflavík var fullgerð að mestu lenging-
in á hafnargarðinum, sem hafin var árið
áður. Nam lengingin 40 m og 10 m á breidd
og nær garðurinn nú út á urn 10 m dýpi
við stórstraumsfjöru. Kostnaður mun alls
nema um 1200 þús. kr.
12. Vitabyggingar.
Við Ólafsvik var reistur lítill innsigling-
arviti og sett í hann ljóstæki.
Þá vaj’ reistur viti á Selskeri í Húnaflóa
vestanverðum. Er hann 16,5 m hár, og ætl-
að að vera siglingaviti fyrir hið hættulega
svæði umhverfis Selskerið og innsiglingar-
viti til Ingólfsfjarðar.
Á Háanesi við Patreksfjörð var reistur
viti 14 m á hæð. Lýsir hann Patreksfjarð-
arflóann og innsiglinguna. Vita þennan hef-
ur firmað Ó Jóhannesson á Patreksfirði
gefið til minningar um Ólaf Jóhannesson
konsúl og útgerðarmann.
Ljósatæki vantar enn í hina tvo síðast-
löldu vita.
Hafinn var bygging á tveim vitum, á
Svartnesi utan við Bakkafjörð og á Akra-
nesi.
Er Svartnesvitinn 18 m á hæð og var
Jokið við að stevpa hann að fullu.
Akranesvitinn er endurbygging i stað
gamla vitans, er var á Suðurflös. Verður
hinn nýi viti 23 m að hæð, eða 10 m hærri
cn sá gamli. Var smíði lians ekki lokið um
áramótin.
13. Landhelgisgæzla
og björgunarstarfsemi.
Ægir var á vetrarvertíðinni við gæzlu við
Vestmannaeyjar, en annaðist jafnframt
nokkra flutninga. Seinnihluta ársins var
skipið mest í flutningum með ströndum
fram.
Veitti hann 12 skipum beina aðstoð og
sótti eitt þeirra 323 sjóm. út á haf, SA. af
Vestmannaevjum.
Óðinn var að mestu til gæzlu og eftir-
lits við Austurland á vetrarvertíðinni og
nokkurn tíma um vorið úti fyrir suður-
ströndinni. Um tíma um sumarið var skip-
ið við sjómælingar á Húnaflóa og i sept-
ember við gæzlu út af Ströndum og á Vest-
fjörðum. Um haustið og til áramóta var
hamj.oftast við gæzlu i Faxaflóa og grennd.
Veittj hann 7 skipum beina aðstoð á árinu.
Sæbjörg var við bátaeftirlit i Faxaflóa á
vetrarvertíðinni og aftur frá því snemma í
júní og framundir miðjan júli. Um sild-
veiðitímann annaðist skipið eftirlit við
Norðurland og var þar einnig um haustið
og fram í deseniberbyrjun. Veitti skipið 15
skipum beina aðstoð.
Vs. Richard frá ísafirði var leigður til
gæzlu við Vestfirði á haust- og vetrarver-
tíð 1942—1943, svo og um haustið 1943.
Auk þess var hann og í flutningum. Veitti
hann nokkrum skipum beina aðstoð.
Mb. Fregja frá Garði var leigð til land-
lielgisgæzlu við Reykjanes og í Faxaflóa
frá miðjum júli til miðs nóvember. Seinni-