Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1944, Síða 41

Ægir - 01.02.1944, Síða 41
Æ G I R 71 Loks bendir þangið á, að verði af hálfu Alþingis eða ríkisstjórnar skipuð nefnd til að finna varanlega lausn á verðbólgunni, þá verði ekki gengið fram hjá sjávarútveg- inum við þá nefndarskipun, en fiskifélag- inu falið að tilnefna fulltrúa til jafns við aðra aðila.“ Fiskveiðasjóður. „Fiskiþingið leggur ríka áherzlu á það, að fiskveiðasjóður verði nú, meðan fé er fyrir hendi, efldur sem mest, svo hann hafi handbært fé til nauðsynlegra nýbygginga á skipum og fiskiðnfyrirtækjum þá þegar er ófriðarástandinu léttir. Vill fiskiþingið i þessu sambandi vekja athygli á því, að rétt sé fyrir sjóðsstjórnina að nota fyrirliggj- andi heimild um handhafaskuldabréfalán fyrir allt að 4 milljónum króna. Jafnframt telur þingið sjálfsagt, að sjóð- urinn fái sjálfstæða yfirstjórn, óháða öðr- um lánsstofnunum, og að fiskifélagið hafi fulltrúa í sjóðsstjórninni.“ Meira mótornámskeið. „17. þing Fiskifélags íslands mælir ein- dregið með, að Alþingi það er nú situr sam- þykki frv. til laga um breytingar á lögum nr. 71 23. júní 1936 um kennslu í vélfræði, sem borið er fram á Alþingi og merkt 34. mál. Vegna þess hve notkun ýmissa raftækja hefur aukizt mjög og fer stöðugt vaxandi um borð í mótorbátum, telur fiskiþingið nauðsynlegt, að á vélfræðinámsskeiðunum, bæði þeim minni og hinum meiri, verði aukin nokkur kennsla í rafmagnsfræði um meðferð þeirra raftækja, sem notuð eru i bátunum.“ öryggismál. „17. þing Fiskifélags íslands álylctar, vegna hinna tíðu og miklu sjóslysa, að beina því til réttra hlutaðeiganda, að vera vel á verði um allt, er lýtur að hleðslu skipa, hvort sem er við veiðar á hafi úti cða siglingar landa á milli, um styrkleika og sjóhæfni skipa, að björgunar- og ör- yggisútbúnaður sé sem beztur og fullkonm- astur.“ Mótorvélar. „Fiskiþingið lítur þannig á, að metj hin- um mikla fjölda vélategunda í fiskibátuin horfi til stórra vandræða, þar sem svo miklum erfiðleikum er bundið að fá nægi- lc-gar birgðir af varahlutum og beri að stefna að því að takmarka fjölda þeirra. Einnig að víðtækt eftirlit sé haft með öll- um nýkeyptum vélum og þær reyndar hér af sérfróðum mönnum áður en þær eru teknar til notkunar. Þetta eftirlit telur þingið eðlilegast og sjálfsagðast að fela fiskifélaginu, þar sem það hefur reyndan vélfræðing í þjónustu sinni, og felur þingið stjórn fiskifélagsins í samráði við vélfræð- ing félagsins að athuga þetta og gera til- lögur um. Bendir þingið útvegsmönnum á nauðsyn ]jess, að þeir teiti álits vélræðiráðunauts félagsins, er þeir festa kaup á mótorvélum í skip sín.“ Beitumál. „Fiskiþingið leggur eindregið á móti samþykkt frumvarps til laga um beitumál, sem vísað var til fiskiþingsins af milli- þinganefnd Alþingis í sjávarútvegsmálum. Hins vegar itrekar fiskiþingið þá kröfu sína, að sett verði heimildarlög um há- marksverð á ferskri og frosinni síld, sem seld er til beitu, og lögboðið sé mat á beitu- sild, sem tekin er til frystingar, bæði þegar luin er tekin í frystihúsin og þegar síldin er seld úr frystihúsunum. Þótt verðlags- stjóri hafi eins og nú standa sakir heimild til að ákveða hámarksverð á beitu, telur fiskiþingið heppilegast að fela fiskifélaginu Jjessi mál og sett sé um það sérstök löggjöf, sem m. a. ákvæði, að á tímabilinu 1. ágúst til 1. okt. ár hvert sé vikulega safnað skýrsl- um um beitubirgðir, og sé fyrir ágústmán- aðarlok útlit fyrir beituskort, heimilist fiskifélaginu að gera ráðstafanir um aukn- ar beitubirgðir i samráði við rikisstjórn- ina.“

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.