Tímarit lögfræðinga - 01.04.1954, Side 3
TÍMARIT LÖGFRÆÐINGA
2. hlefti 195h.
ólafur Lárusson, prófessor:
Henry Ussing.
Prófessor Henry Ussing andaðist hinn 9. sept. s.l. Við
lát hans féll í valinn einn hinn mikilhæfasti lögfræðingur
Norðurlanda á síðari tímum.
Henry Ussing var fæddur 5. maí 1886 í Vejlby nærri
Árósum, en þar var faðir hans þá sóknarprestur. Ætt
hans var gömul og velmetin fræðimannaætt, og m. a. eru
í henni ýmsir mikilsháttar lögfræðingar svo sem próf. Al-
green Ussing, Carl Johannes Ussing, dómari í alþjóða-
dóminum í Egyptalandi, Carl Theodor Ussing dómstjóri
í yfirdómi og síðar þjóðbankastjóri, Werner Jesper Andre-
as Ussing, hæstaréttardómari og síðar einnig þjóðbanka-
stjóri. Afi Henry Ussings, Johann Louis Ussing, var pró-
fessor í klassiskri málfræði og Garðprófastur, og föður-
bróðir hans, Niels Viggo Ussing, var prófessor í jarð-
fræði. Faðir Henry Ussing, lie. theol Henry Braem Uss-
ing, er seinna varð stiftprófastur, var einnig mikill lær-
dómsmaður og talinn einn af fremstu og áhrifamestu
mönnum í kirkjulífi Dana um sína daga.
Henry Ussing varð stúdent árið 1904 og lauk embættis-
prófi í lögfræði við Kaupmannahafnarháskóla 1910. Eigi
er það að efa, að hann hefir stundað nám sitt af kappi og
að snemma hefir skarpskyggni hans og lærdómur komið
í ljós. Segir sagan, að próf. Torp hafi eitt sinn hætt við
að halda fyrirlestraflokk einn sakir þess, hve oft Ussing
6
65