Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Blaðsíða 3
TIMARIT LOGFRÆÐINGA
1. hefti 1960
*
Avarpsorð
frá Lögmannafélagi íslands
Með þessu hefti Tímarits lögfræðinga hættir Lögmanna-
félag íslands útgáfu þess, en Lögfræðingafélag Islands
tekur við henni.
Þegar Lögmannafélag Islands hófst handa um útgáfu
tímaritsins árið 1951, var svo ástatt hér á landi, að ekk-
ert almennt lögfræðingafélag var starfandi og að laga-
nemar, sem af mikilli kostgæfni höfðu gefið út Clfljót,
höfðu orðið að -hætta útgáfunni í svip.
Þótti stjórn Lögmannafélagsins ótækt, að jafn fjöl-
menn stétt og lögfræðingar eru, skyldi ekki hafa sérstakt
tímarit í fræðigrein sinni.
Því var það, að ráðizt var í útgáfu timaritsins, þó að
stjórn félagsins bæri fyrir því nokkurn kvíðboga, að fé-
lagsmenn þess gæfu sér ekki tíma til að rita i það um
lögfræðileg efni. Bera ávarpsorð stjórnarinnar í 1. hefti
ritsins þennan kvíða með sér, og hefur liann ekki verið
með öllu ástæðulaus.
Þegar Lögfræðingafélag íslands var stofnað, þótti stjórn
Lögmannafélagsins það sjálfsagt, að Lögfræðingafélagið
tæki að sér útgáfu ritsins, og hófust fljótlega samningar
um það milli stjórna félaganna. Er því ekki að neita,
að ýmsir ágætir félagsmenn Lögmannafélagsins sáu eftir
Tímarit lögfrœöinga
1