Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Blaðsíða 80
alkunna, hvílík vandræði vöntun slíkra húsa skapar lög-
gæzlumönnum. Verður þessi ómöguleiki á fangelsun ó-
spektarmanna ósjaldan til að stórspilla samkomum eða til
þess, að þær leysast upp og ennfremur til þess, að erfið-
leikar eru á að fá menn til að gegna löggæzlustörfum á
þessum stöðum. Að langmestu leyti eru það ölvunarbrot
og óspektir, sem valda handtökum manna. Skýrslur um
árlegan fjölda handtekinna manna í lögsagnarumdæmum
landsins hefi ég eigi undir höndum nema úr Reykjavík.
Þaðan hefi ég fengið upplýsingar um þessi efni frá árun-
um 1950—1959. Þau ár voru handtökutilfelli samanlagt
38830, eins og getið er áður úr bréfi lögreglustjórans, eða
3883 á ári til jafnaðar. Árið 1959 voru handtökutilfelli
í Reykjavík 4687, eða um 13 á dag til jafnaðar.
Við þessar tölur er þess að gæta, að margoft hefir orðið
að láta handtökur hjá líða vegna rúmleysis í fangageymsl-
unni, svo sem sést á bréfi lögreglustjóra. Sama máli gegn-
ir um ýms önnur lögsagnarumdæmi, þar sem fangageymsl-
ur eru, einkum á vertíðum. Þar sem enginn aðgangur er
að fangageymslu fara handtökur ekki fram nema mjög
brýna nauðsyn beri til og verður þá að notast við húsrými,
sem fengið er að láni hjá einstaklingum eða stofnunum
eða þá að löggæzlumenn vakta hinn handtekna á heimilum
sínum, heimili hans eða þá í húsum hins opinbera, sem
ætluð eru til allt annarra nota. Af þessu leiðir, að hand-
tökufjöldinn, þótt upplýstur væri, er engan veginn full-
næg.jandi heimild um þörfina fyrir fangageymslur.
Tölur er eigi unnt að nefna í þessu sambandi nema eftir
ágizkun einni, en það er samhljóða álit margra löggæzlu-
manna, sem ég hefi rætt við um þetta, að um langt árabil
hafi talsverð og sums staðar mikil brögð verið að því, þar
sem fangahús hafa verið, að mönnum hafi vegna rúmleys-
is verið sleppt við handtöku, sem hefðu að öðrum kosti átt
að sæta henni. hvað þá þar sem engin fangahús hafa verio.
Eðli málsins samkvæmt hljóta fangahús til gejmislu
handtekinna manna og til gæzluvarðhalds að eiga að vera
78
Tímarit lögfræOinga