Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Blaðsíða 57
ekki fást úrbætur í fangageymslumálunum innan skamms.
Er þó hvergi nærri æskilegt að þurfa að leggja í þann
kostnað í húsnæði, sem fyrirsjáanlega er ekki unnt að
nota nema stuttan tíma ennþá.
Framangreindur reksturskostnaður er greiddur að hálfu
úr ríkissjóði og að hálfu úr bæjarsjóði Reykjavíkur.
,6. Af framanskráðu er ljóst, að þrýn þörf er á gagn-
gerðum breytingum á fangageymslumálunum og hefir
Jengi verið....“
2. Gullbringu- og Kjósarsýsla og Hafnarfjöröur
1 sýslunum er ekkert fangahús. 1 Hafnarfirði er fanga-
hús úr steinsteypu, byggt 1945, tvær hæðir án kjallara,
áfast hinu gamla timburhúsi, sem bæjarfógetaskrifstofan
er í. Á neðri hæð er lögreglustöð, tveir fangaklefar, hrein-
iætisherbergi og salerni fyrir húsið allt. Á efri hæð er lítill
dómsalur og fjórir fangaklefar. Um fangahús þetta segir
bæjarfógetinn í bréfi, dagsettu 15. júní s.l.:
„Fangahús þetta verður að teljast allsendis ónothæft til
afpláningar refsidóma, þó að það hafi raunar stundum
verið notað þannig á undanförnum árum. Stafar það m. a.
af því, að salerni er ekkert nema á neðri hæð og aðeins eitt
fyrir allt húsið. Réttarsalur verður og illnothæfur vegna
háreysti frá föngum. Hins vegar má nota fangaklefana til
geymslu á mönnum, drukknum og ódrukknum, sem nauð-
syn ber til að svifta frelsi unz þeir verða leiddir fyrir dóm-
ara. Þó er það til mikils baga, að ekki eru nema tveir klef-
ar á neðri hæð. Ennfremur má nota fangahúsið enn um
sinn, sem hingað til, til geymslu fanga, sem úrskurðaðir
hafa verið í gæzluvarðhald vegna dómsrannsókna hér við
embættið."
3. Keflavík
Þar er fangahus með 8 klefum. Er það götuhæð hússins
Hafnargötu 17, en á efri hæð hússins er lögreglustöð bæj-
arins.
Tímarit lögfrœöinga
55