Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Blaðsíða 31
ingarfrv., horfir þetta mál allt öðru vísi við. Er þá naum-
ast annars úrkosti en að láta afhendingartímann einn
saman skera úr, og er lagt til, að svo sé gert í upphafi
ákvæðis 16. gr. frv. Við þessa hætti verður það sárasjakl-
an raunhæft, að tvö skjöl eða fleiri séu afhent samtimis,
en eins og fyrr greinir eru þau þá talin jöfn að þinglýs-
ingargildi. Frá þeirri meginreglu eru þó frávik. 1 fjTsta
lagi ganga aðfarargerðir og kyrrsetningar fyrir rétti, sem
stafar af öðrum atvikum, sbr. 16. gr. frv., og ef skjöl
stafa frá tveimum aðfarargerðum (kyrrsetningargerðum)
gengur það fvrir, sem styðst við eldri (eða elztu) gerðina.
í öðru lagi er sérstalct ákvæði í 16. gr. um þann aðilja,
sem afhent hefur öðrum eign, en jafnframt áskilið sér
réttindi yfir eigninni, svo sem veðrétt eða forkaupsrétt,
og gengur sá réttur fyrir réttindum, sem yngri rétthaf-
inn hefur stofnað, ef skjali eldra rétthafans er þinglýst
í síðasta lagi samtímis skjali því, sem veitir viðsemjanda
vngra eigandans réttindi. Styðjast þessi frávik tvö við
auðsæ rök. — Þegar skera á úr um forgengi einstakra
rétthafa, verður að sjálfsögðu að hafa í huga, að regl-
urnar um grandlejrsi grípa inn í þetta mái, þannig að
forsenda fyrir því, að sá vinni betri rétt, sem fyrr af-
hendir slcjal sitt til þinglýsingar, er að sjálfsögðu sú, ef
skjal hvílir á löggerningi, að hann sé grandlaus um rctt
þess, er fvrr öðlaðist rétt sinn. Enn fremur ber að líta
til þess, að sum réttindi eru ekki háð þinglýsingu, sbr.
29.—32. gr. frv., og skiptir þinglýsing síðar aflaðs réttar
þá ekki máli, þegar leysa á úr því, hvor þessara réttinda
séu rétthærri.
I 17. gr. frv. er nýmæli um færslu skjala, sem svo
stendur á um, að dómari telur sig ekki geta ákvarðað
gjöld af þeim án samráðs við fjármálaráðuneytið.
18. gr. frv. fjallar um áreiðanleika þinglýsingarbóka á
jákvæða vísu, þ. e., að hverju marki menn geti treyst því,
að þinglýst skjöl séu réttilega færð til þinglýsingarbóka
og hversu bregðast skuli við, ef mistök hafa átt sér stað
Tímarit l.ögfrœOinga
29