Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Blaðsíða 69
þar er mjög þröngur stakkur skorinn og raunar engin að-
staða til starfa, sem næði þarf til, og er það að sjálfsögðu
óviðunandi.“
Eins og segir hér að framan liggja dyr fangaklefanna
að ganginum frá útidyrum hússins inn í lögregluvarðstof-
una. Á klefahurðunum eru kringlótt op, rúðulaus. Heyra
því allir, sem inn í ganginn koma til þeirra, sem í klefun-
um eru, og geta séð þá og talað við þá um op þessi. Er
þetta ótækt og eru dæmi til þess, að fólk, sem komið hefir
inn í ganginn til að hafa tal af lögreglunni, hefir hrökkl-
ast út vegna hrópa og háreysti ölóðra manna í klefunum.
Að öðru leyti virðast klefarnir nothæfir til geymslu hand-
tekinna manna um stundarsakir.
19. Þingeyjarsýsla og Húsavík
1 nýlega byggðri slökkvistöð á Þórshöfn á Langanesi eru
3 fangaklefar og snyrtiherbergi ásamt varðstofu. Eru
klefarnir fyrst og fremst ætlaðir til geymslu ölvaðra
manna um stundarsakir.
önnur fangahús eru ekki í þessum lögsagnarumdæmum,
en áform eru uppi um að koma fyrir fangaklefum í slökkvi-
stöð, sem byggð verði á Húsavík.
20. Norður-Múlasýsla og Seyðisfjörður
Ekkert fangahús.
21. Neskaupstaður
Ekkert fangahús. Áform eru uppi um að innrétta gömlu
slökkvistöðina þar í bæ sem fangahús með 2 tveggja manna
klefum, snyrtiherbergi og lögregluvarðstofu.
22. Suður-Múlasýsla
Þar er eitt fangahús, í Egilsstaðakauptúni. Um það seg-
ir sýslumaður í bréfi, dagsettu 10. júní s.l.:
„Það var byggt á kostnað hreppa á Fljótsdalshéraði með
styrk úr sýslusjóðum Norður- og Suður-Múlasýslu og úr
Tímarit. löqfrœdincia
07