Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Blaðsíða 8
Sölvasonar, lögmanns, Magnúsar Stephensens, dómstjóra,
Vilhjálms Finscns, liæslaréttardómara, Jóns SigurSsson-
ar, alþingisforseta, og svo prófessoranna Lárusar H.
Bjarnasonar og Einars Arnórssonar, svo að ekki sé vikið
að núlifandi mönnuxn. Að því er sérstaklega varðar tima-
rit í lögfræði, ættum vér lögfræðingar að vera vel minn-
ugir fordæmis Magnúsar Stepiiensens, sem vék mjög að
lögfræðilegum efnum í tímaritum sínum, einkum Klaust-
urpóstinum, og svo fordæmis Páls Briems amtmanns, sem
hélt úli einn og óstuddur tímaritinu Lögfræðingi í fimm
ár frá 1897—1901.
Tímarit lögfræðinga hefur þegar sýnt og sannað, að
það gegnir miklu lilutverki meðal isienzkra lögfræðinga.
Stjórn Lögfræðingafélags Islands skorar nú á íslenzka
iögfræðingastétt að fylkja sér um tímaritið og styðja það
með ráðum og dáð, bæði með þvi að leggja þvi til efni
og svo fjárhagslegt liðsinni.
Ármann Snævarr.
Tímarit lögfrœöincja