Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Blaðsíða 48
Á VÍÐ OG DREIF
Frá Hæstarétti.
Jón Ásbjörnsson hæstaréttardómari varð sjötugur hinn
18. marz s.l. og lét af störfum lögum samkvæmt. Jón
Ásbjörnsson er, eins og alkunnugt er, einn hinna fremstu
lögfræðinga landsins. Hann stundaði lengi málflutnings-
störf, en var skipaður hæstaréttardómari 23. apríl 1945
frá 1. maí s. á. Hann hefur gegnt mörgum trúnaðar-
störfum öðrum, og má sérstaklega nefna, að liann var
frumkvöðull að stofnun Hins ísl. fornritafélags 1928 og
forseti þess frá upphafi.
öllum störfum sínum hefur Jón Ásbjörnsson gegnt
með fráhærri árvekni og skyldurækni.
I stað Jóns Ásbjörnssonar var Lárus Jóhannesson hrl.
skipaður hæstaréttardómari hinn 29. apríl þ. á. frá 1.
mai þ. á.
Lárus Jóhannesson er þjóðkunnur maður, eins og
fyrirrennari hans. Hann er fæddur 21. október 1898, og
lauk lagaprófi við Lagadeild Háskólans 1920 með hæsta
prófi, er þá þekktist. Hann stundaði síðan framhaldsnám
í Danmörku vetrarlangt. Hann var fulltrúi föður sins,
Jóhannesar Jóhannessonar bæjarfógeta í Rej'kjavik, um
þriggja ára bil, en hæstaréttarlögmaður varð hann 19.
des. 1924, og stundaði síðan málflutning, þar til hann
var skipaður dómari.
Lárus Jóhannesson befur gegnt ýmsum öðrum störf-
um. M. a. var liann alþingismaður alllengi, starfaði í
vmsum félögum og nefndum, hefur látið viðskiptamál til
sín taka, o. fl. mætti telja. Siðast en ekki sízt má geta þess,
að Lárus var formaður Lögmannafélags íslands frá ár-
46
Tímarit lögfræöinga