Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Blaðsíða 56
3. Staðsetning lögreglustöðvarinnar og fangageymsl-
unnar á horni Pósthússtrætis og Hafnarstrætis, þröngra
og umferðarmikilla gatna, er þegar orðið mikið vandamál.
Lögreglustöðvarlóðin er nær öll undir byggingum. Færa
verður því ölvaða menn og aðra, sem lögreglan handtek-
ur, úr lögreglubifreiðum 1 Pósthússtræti eða Hafnarstræti
og inn á lögreglustöð, svo að segja fyrir almenningssjón-
um. Er það vægast sagt óviðurkunnanlegt bæði fyrir þá,
sem handteknir eru, og vegfarendur, sem af tilviljun verða
áhorfendur þess.
4. Fangageymslan er að langmestu leyti notuð fyrir ölv-
aða menn. Þó kemur stundum fyrir, að þar eru geymdir
um stundarsakir afbrotamenn og geðveikt fólk. Ennfrem-
ur heimilislausir flækingar og drykkjumenn, sem beiðast
gistingar um nætursakir.
Á s.l. ári voru 4687 varðhaldstilfelli, en á árunum 1950
—1959 samtals 38830. Vegna rúmleysis kemur mjög oft
fyrir að sleppa verður föngum fyrr úr haldi en efni standa
til vegna annarra, sem enn brýnni nauðsyn er á að geyma.
Sömuleiðis verður lögreglan mjög oft að flytja ölvað fólk
heim, þótt vitað sé, að æskilegra væri að hafa það í haldi
af heimilisástæðum viðkomandi fólks eða öryggis vegna.
Torveldar þetta mjög löggæzlu í bænum, einkum að kvöld-
og næturlagi.
5. Við fangageymsluna starfa þrír fangaverðir. Eru
tveir þeirra ríkisstarfsmenn, sérstaklega ráðnir sem fanga-
verðir, en einn úr lögregluliði Reykjavíkurbæjar. Fanga-
vörðum er gert að skyldu að gæta að föngunum á 20 mín-
útna fresti í öryggisskyni. Eru sérstakar varðklukkur við
hverjar klefadyr, sem fangaverðirnir stimpla inn á, er
þeir koma þangað.
Reksturskostnaður fangageymslunnar að meðtöldum
viðhaldskostnaði og launum tveggja fangavarða, nam á
s.l. ári kr. 171.972,27, en er áætlaður á þessu ári kr.
244.000,00. Hækkunin stafar aðallega af því, að ráðgert
er að byggja sérstakt salerni fyrir fangana á þessu ári, ef
54
Tímarit lögfræSinga