Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Blaðsíða 51
\JaÍÁ'uncu' JjJtepánáíon, áa U<
oman:
Skýrsla um fangelsamál
Snemma á þessu ári fól dómsmálaráóherra Valdimar
Stefánssyni sakadómara aS rannsaka fangelsamál lands-
ins og gera tillögur til úrbóta. Sakadómari hófst þegar
handa. Hann safnaði skýrslum frá lögreglustjórum og til-
lögum frá þeim, og athugaði sjálfur fang&lsi landsins.
Hann fór og til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Þar
kynnti hann sér ástand þessara mála, nýmæli og endur-
bætur, bæði með viðtölum við sérfróða menn og skoðun
á ýmsum fangelsum og skyldum stofnunum. Er hann hafði
gert ráðherra grein fyrir störfum sínum og tillögum var
samið frumvarp til laga um fangelsamál landsins og lagt
fyrir Alþingi það sem nú situr.
Skýrsia sakadómara er svo fróðleg og tillögur hans svo
athyglisverðar að tímaritið hefur óskað þess að fá skýrsl-
una til birtingar. Urðu þeir báðir, ráðherrann og saka-
dómari vel við tilmælum í þá átt, og fer skýrslan hér á
eftir að undanskildum inngangsorðum.
Samkvæmt 32. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 12.
febrúar 1940, er refsivist hér á landi tvenns konar: Fang-
elsi og varðhald. Þessar refsingar eru dæmdar samkvæmt
hegningarlögunum og ýmsum öðrum lögum. Vararefsing-
ar fésekta samkvæmt hegningarlögunum og öðrum lög-
um eru ýmist varðhald eða fangelsi, þó miklum mun oftar
varðhald.
I VII. kafla hegningarlaganna eru nokkur ákvæði um
öryggisgæzlu sakamanna. Samkvæmt 62. og 63. gr. er að
fullnægðum vissum skilyrðum heimilt að dæma ósakhæfa
Tímarit lögfrœSinga
49